Fréttir
Farfuglar
Farfuglar
Fuglaathugunarstöð Suðausturlands hlaut m.a. styrk úr Kvískerjasjóði (úr myndasafni BA)

18.05.2011 Fréttir

Kvískerjasjóður úthlutar styrkjum ársins 2011

Nýlega úthlutaði Kvískerjasjóður styrkjum ársins 2011 og er það sjöunda úthlutun frá stofnun hans árið 2003.  Alls bárust 18 umsóknir og var samanlögð upphæð umsókna rúmlega 13 milljónir króna. Að þessu sinni er úthlutað 3,5 milljónum króna til þrettán verkefna. 

 

Verkefnin sem hlutu styrk eru: 

  • Eyðibýli í Austur – Skaftafellssýslu, Gísli Sverrir Árnason, Samstarfshópur um verndun og nýtingu eyðibýla á Íslandi.
  • Hámarksútbreiðsla Vatnajökuls í lok Litlu ísaldar, Snævarr Guðmundsson.
  • Skráning menningarminja í Öræfasveit, Guðlaug Matthildur Jakobsdóttir.
  • Stærstu jökulgarðar á Íslandi –  setgerð, bygging og myndun Kvíármýrar- og Kambamýrarkamba,
    Dr. Ívar Örn Benediktsson, Jarðvísindastofnun Háskólans.
  • Rannsókn og miðlun á fornum minjum i landi Kvískerja, Elín Ósk Hreiðarsdóttir
    Fornleifastofnun Íslands.
  • Könnun á kelfingu íss í Jökulsárlón, Eyjólfur Magnússon.
  • Birki á Skeiðarársandi: fræframleiðsla og frægæði, Dr. Kristín Svavarsdóttir, Landgræðslu ríkisins
    og Dr. Þóra Ellen Þórhallsdóttir, Háskóla Íslands.
  • Útivist og afþreying ferðamanna í Vatnajökulsþjóðgarði, Dr. Þorvarður Árnason, Rannsóknasetri Háskóla Íslands á Hornafirði.
  • Áhrif landgræðsluaðferða, lúpínu og áburðargjafar/sjálfssáningar, á dýralíf á Íslandi,
    Brynja Davíðsdóttir.
  • Áhrif Vatnajökuls á veður og veðurfar, Hálfdán Ágústsson, Reiknistofu í veðurfræði.
  • Skráning mynda, Svavar M. Sigurjónsson.
  • Þróun gróðurs og jarðvegs í Skaftafelli og Öræfum síðustu árþúsundir með tilliti til áhrifa loftslags, eldvirkni og mannvistar, Guðrún Gísladóttir.
  • Fuglar: nytjar og hefðir, Björn Gísli Arnarson, Fuglaathugunarstöð Suðausturlands.

 

Hlutverk Kvískerjasjóðs er að stuðla að og styrkja rannsóknir á náttúrufari og menningu í Austur-Skaftafellssýslu.  Frá upphafi hefur sjóðurinn stutt við margvísleg metnaðarfull verkefni sem bæði eru mikilvægt framlag inn í vísindaheiminn en ekki síður munu þau geta gagnast til að styrkja framþróun byggðar í Austur-Skaftafellssýslu.  Á heimasíðu Kvískerjasjóðs mun í framtíðinni, eftir því sem mögulegt er og í samráði við styrkþega, verða hægt að nálgast upplýsingar um niðurstöður verkefna.

Það er mat sjóðsstjórnar að Kvískerjasjóður hafi sannað gildi sitt, verið hvati að margvíslegum rannsóknum í Austur-Skaftafellssýslu og þannig stuðlað að framhaldi þess umfangsmikla vísindastarfs systkinanna á Kvískerjum eins og honum var ætlað við stofnun.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica