September
Haustfagnaður 8.-10. bekk 2010
Haustfagnaður 8.-10. bekk 2010
Úr myndasafni Þrykkjunnar
Mynd 4 af 6
1 2 3 4 5 6

13.09.2010 September

Starfsemi félagsmiðstöðvarinnar komin í gang

 

Breytingar urðu í haust innan félagsmiðstöðvarinnar Miðgarðs, Hólmfríður Bryndís Þrúðmarsdóttir sinnir nú starfi tómstundafulltrúa Hornafjarðar sem Helga Rún Guðjónsdóttir sinnti áður, en hún er í barneignarleyfi. Brynjar Þór Pétursson var með Helgu síðasta vetur og mun halda áfram og verður Fríðu til halds og trausts þennan veturinn líka.

Tómstundastarfið innan félagsmiðstöðvarinnar er komið á fullt og voru kosningar í síðustu viku þar sem kosið var bæði í nemendaráð og Miðgarðsráð. Síðan á haustfagnaði 8.-10. bekkjar voru tilkynnt úrslit kosninga. Miðgarðsráð hélt svo sinn fyrsta fund í lok síðustu viku og samanstendur ráðið af sex öflugum krökkum úr 8.-10. bekk.

Miðgarðsráð veturinn 2010-2011:

8.bekk: Hafþór Snorrason og Anna Birna Elvarsdóttir

9.bekk: Alexander Snær Stefánsson og Ragnar Magnús Þorsteinsson

10.bekk: Dóra Björg Björnsdóttir og Ingvi Þór Sigurðsson

Í vetur verður mikið lagt upp úr klúbbum og öflugu félagsstarfi fyrir krakkana og hefur samstarf milli skólans og félagsmiðstöðvarinnar verið aukið til muna. SAMAUST sem er undankeppni fyrir SAMFÉS, söngvakeppni félagsmiðstöðva á landinu, verður haldin hér á Hornafirði þetta árið og verður það einn af stóru viðburðunum vetrarins. Síðan verða viðburðir eins og sundstuð, innilega, Fjarðaball, stelpu- og strákakvöld og fleira, á sínum stað ásamt fullt af nýjungum. Núna á miðvikudaginn næsta 15. september, verða haldnir FÁRÁNLEIKAR á opnu húsi hjá 8.-10.bekk, kl.20:00-22:00. Þar verður keppt í fáránlegum greinum og svo verða veitt verðlaun fyrir fáránlegasta dressið.

Undanfarin ár hefur 6.-10. bekk staðið til boða að sækja félagsmiðstöðina, í ár ætlum við einnig að bjóða 5. bekk að koma einu sinni í viku.

Það stefnir allt í öflugan vetur í Miðgarði og verða sérviðburði auglýstir á í skólanum og á Skjávarpinu, svo það er um að gera að fylgjast vel með.

Einnig langar okkur að benda á að ef það eru einhverjar spurningar sem brenna á fólki sem og tillögur er hægt að hafa samband við Fríðu á netfanginu fridath@hornafjordur.is og svo er líka alltaf hægt að kíkja í kaffi og spjall í félagsmiðstöðinni.

Við komum öflug til starfa og hlökkum mikið til vetrarins og þeirra ævintýra sem hann mun bera í skauti sér og vonumst til að sem flestir muni heimsækja okkur í félagsmiðstöðina í vetur, börn og fullorðnir.

Fríða og Brynjar

Stundatöflu félagsmiðstöðvarinnar má sjá hér  (pdf)
Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica