September
Kartöflur teknar upp
Mannlíf í Hornafirði
Kartöflur teknar upp (úr myndasafni)

04.09.2010 September

Skuldsetning sveitarfélagsins með því lægsta sem gerist

Á undanförnum dögum hefur talsverð umræða átt sér stað um fjármál sveitarfélaga, einkum slæma skuldastöðu og rekstrarvanda sumra þeirra.  Á heimasíðu samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins má finna fréttatilkynning frá Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga um þessi mál.  Þar kemur fram að einungis fimm sveitarfélög af þeim sem eru með 1000 íbúa eða fleiri búa við betri skuldastöðu en Sveitarfélagið Hornafjörður.  Ef sveitarsjóður er eingöngu skoðaður kemur í ljós að skuldir nema 77% af tekjum sveitarfélagsins en lægst er þetta hlutfall hjá Húnaþingi vestra eða 50% og hæst hjá Álftanesi eða 518%.  Ef skuldir á hvern íbúa eru skoðaðar kemur jafnframt í ljós að Sveitarfélagið Hornafjörður stenst vel samanburð við önnur sveitarfélög en mælt á hvern íbúa skuldar sveitarfélagið 506 þúsund krónur.  Sjö sveitarfélög eru með lægri skuldir á hvernig íbúa en Sveitarfélagið Hornafjörður en lægst er Rangárþing eystra með 333 þúsund á hvern íbúa en hæst er Álftanes með 2785 þúsund á hvern íbúa. 

Í fréttatilkynningu eru einnig athyglisverðar tölur um  framlegð (rekstrarniðurstaða áður en tekið er tillit til fjármagnsliða) hjá sveitarfélögum  dregnar fram.  Þar situr Sveitarfélagið Hornafjörður í sjöunda sæti með 12,1% framlegð en hæst er Dalvík með 17% framlegð. 

Samanborið við önnur sveitarfélög stendur Sveitarfélagið Hornafjörður því sterkt fjárhagslega.


Tengt efni: Fréttatilkynning frá Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga (pdf)


Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica