September

Verkefnastefnumót NPP á Höfn

Ráðsmiðja um fræðandi ferðaþjónustu - 16.09.2010 September

Stefnumót þetta hefur hlotið nafnið Ráðsmiðja þar sem um er að ræða sambland af ráðstefnu, námssmiðju og opnum fundi. Ætlunin er að skapa vettvang fyrir ferðaþjónustuaðila og fræðimenn til að ræða saman um þróun fræðandi ferðþjónustu á Íslandi í dag. Lesa meira
 
Nýsköpunarkeppni 2010 - keppendur úr Grunnskóla Hornafjarðar

Nýsköpunarkeppni grunnskóla - 15.09.2010 Fréttir Grunnskóli

Dagana 16. - 19. september fara fram úrslit í Nýsköpunarkeppni grunnskóla.  Fjörutíu og fjórir krakkar komust í úrslit, þar af fjórir úr Grunnskóla Hornafjarðar. Að þessu sinni bárust 1600 hugmyndir allstaðar af landinu svo að Hornfirðingar mega vera sáttir við sinn hlut.

Lesa meira
 
Endalausidalurinn 1. sept 2010

Endalausidalurinn 1. sept - 15.09.2010 Fréttir Grunnskóli

Rúmlega fjörutíu manns gengu Endalausadalinn sem liggur á milli Laxárdals í Nesjum og Lóns. Farið var á þremur litlum rútum inn á Laxárdal, þar safnaðist hópurinn saman og farið var yfir það helsta sem hafa ber í huga í fjallgöngu.

Lesa meira
 
Berjaferð haust 2010 í Haukafell

Ferð í Haukafell - 15.09.2010 Fréttir Grunnskóli

Farið var í mjög skemmtilega berjaferð í Haukafell miðvikudaginn 1. september. Farið var á rútum með alla úr 1. – 4. bekk. Við byrjuðum á að fá okkur epli þegar við komum á staðinn og á eftir fengum við heitt kakó. Allir nutu þess að borða úti í náttúrunni enda var veðrið mjög gott. Sólin skein og við fengum 15° hita.

Lesa meira
 
Börn Sigríðar

Sögusýning um Sigríði Jónsdóttur frá Vogum og fjölskyldu hennar - 14.09.2010 Menning

Sigríður Jónsdóttir frá Vogum í Reykjahlíð við Mývatn var kjarnakona og Móðir þeirra bræðra Nonna og Manna.

Lesa meira
 
David-White

Sýning á verkum David White fram undan - 14.09.2010 Menning

David White er mörgum hornfirðingum kunnur en hann dvaldi hér um tíma fyrir mörgum árum og teiknaði myndir af svæðinu og fólkinu hérna.

Lesa meira
 
Haustfagnaður 8.-10. bekk 2010

Starfsemi félagsmiðstöðvarinnar komin í gang - 13.09.2010 September

Breytingar urðu í haust innan félagsmiðstöðvarinnar Miðgarðs, Hólmfríður Bryndís Þrúðmarsdóttir sinnir nú starfi tómstundafulltrúa Hornafjarðar sem Helga Rún Guðjónsdóttir sinnti áður, en hún er í barneignarleyfi.

Lesa meira
 
Á körfuboltavellinum (úr myndasafni)

Útikörfuboltavöllur vígður - 13.09.2010 Sindra fréttir

Nýr útikörfuboltavöllur á miðsvæðinu var vígður miðvikudaginn 25. ágúst. Um er að ræða körfuboltavöll sem er sömu stærðar og þvervellir í íþróttahúsinu

Lesa meira
 
Ráðhús Hafnar

Breytingar í ráðhúsi - 13.09.2010 Fréttir

Síðast liðið sumar létu Erna Einarsdóttir, aðalbókari, og Hákon Valdimarsson byggingarfulltrúi af störfum.  Þann 1. september tóku gildi breytingar á embættum sveitarfélagsins en þær eru helstar að tækni-og umhverfissvið sveitarfélagsins er sameinað fjármálasviði. 

Lesa meira
 
nemendarað 2010

Nemendaráð og Miðgarðsráð - 10.09.2010 Fréttir Grunnskóli

Í tengslum við haustfagnað nemenda á unglingastigi var kosið í nemendaráð skólans og Miðgarðsráð.  Auk þess sem bekkjarkvöld var hjá 7. bekk og haustfagnaður hjá 8. - 10. bekk þá tóku unglingarnir forskot á sæluna og fóru í spil og leiki í síðast tíma dagsins. 

Lesa meira
 
Sveinbjörg Zophoníasdóttur

Sveinbjörg gerir það ekki endasleppt - 09.09.2010 Sindra fréttir

Sveinbjörg Zophoníasdóttir keppti á sænska meistaramótinu í fjölþrautum um helgina í sjöþraut. Hún gerði sér lítið fyrir og hreppti brons.

Lesa meira
 
FAS

Gróðurframvinda athuguð - 09.09.2010 September

Í gær hélt hópur úr FAS í leiðangur út á Skeiðarársand. Þetta voru nemendur úr NÁT103 sem er líffræðiáfangi. Lesa meira
 
Álftir

Mikið af álftum í Lóni - 07.09.2010 September

Um þetta leiti er mikið af álftum í Lóni sem gleðja augu vegfarenda og að sögn Björns Arnarsonar hjá Fuglaathugunarstöðinni á Höfn eru rúmlega tíu þúsund álftir á Lónsfirðinum. Lesa meira
 
Þórbergssetur

Alþjóðleg söguráðstefna í Þórbergssetri - 07.09.2010 September

Þórbergssetur og Háskólasetrið á Höfn standa fyrir málþingi helgina 2.-3. október sem ber yfirskriftina: „Landnám norrænna og keltneskra manna á Suðausturlandi”.
Málþingið er hugsað sem upphaf á rannsóknarsamvinnu íslenskra og erlendra fræðimanna sem mun standa fyrir nokkrum málþingum og ráðstefnum.
Lesa meira
 
Skalatindar-1.-sept-4

Göngu- og berjadagur 1. september - 05.09.2010 Fréttir Grunnskóli

Miðvikudaginn 1. september var göngu- og berjadagur í skólanum. Yngstu fjórir árgangarnir fóru í berjamó í Haukafell en hinir fóru í gönguferð og voru þrjár leiðir í boði.  Það var Bergárdalurinn, Endalausidalurinn og Skálatindarnir.

Lesa meira
 
Kartöflur teknar upp

Skuldsetning sveitarfélagsins með því lægsta sem gerist - 04.09.2010 September

Samanborið við önnur sveitarfélög stendur Sveitarfélagið Hornafjörður sterkt fjárhagslega. Lesa meira
 
Aftur í nám

Aftur í nám - 02.09.2010 September

Núna er boðið upp á ensku og dönsku. Alls eru 25 nemendur skráðir í ensku og 17 á dönsku. Lesa meira
 
Svavar Guðnason

Bandamaður náttúrukraftanna - 01.09.2010 September

Sögusýningin „Bandamaður náttúrukraftanna“ um Svavar Guðnason listmálara opnar laugardaginn 4. september í „Kaupfélagshúsinu“ eða Kaupmannshúsi Ottós Tuliniusar. Lesa meira
 
Sessilía Sól og Jón Halldór

Söfnuðu fyrir Rauða krossinn - 01.09.2010 September

Þessir flottu krakkar, Sessilía Sól og Jón Halldór, héldu tombólu í Hlíðartúninu fyrir skömmu Lesa meira
 

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica