Ágúst
Flugeldasyning Jökulsárlón
Flugeldasýning Jökulsárlón
Mynd 1 af 3
1 2 3

27.08.2010 Ágúst

Stærsta flugeldasýning hingað til á Jökulsárlóni

Annað kvöld kl. 23 verður flugeldasýningin á Jökulsárlóni. Björgunarfélag Hornafjarðar sér um sýninguna að venju ásamt starfsfólki Jökulsárlóns með stuðningi ferðaþjónustunnar í héraðinu. Allur ágóði rennur til Björgunarsveitarinnar. Í fyrra mættu yfir eittþúsund og fimmtíu manns á flugeldasýninguna og má eiga von á að minnsta kosti þeim fjölda í ár ef ekki fleirum. Sýningin í ár verður sú stærsta hingað til og er spáð heiðskíru og góðu veðri. Umgjörð sýningarinar er einstök og gerir hana ólíka öllum öðrum flugeldasýningum að hafa hana á ísjökum í lóninu. Til stendur að festa þessa tímasetningu í sessi en nú er farið að skyggja og njóta flugeldarnir sín betur í myrkri eins er meira laust að gistiplássi í héraðinu á þessum tíma. Eru gestir hvattir til að mæta tímanlega. Aðgangseyrir er kr. 1000 en frítt fyrir börn yngri en 12 ára.

 

Hér er tengill inn á myndband af sýningunni í fyrra.  

Stöð 2

Heimildir og fræðsla

gosk@simnet.is

 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica