Ágúst
Busavígsla í FAS
Í gær fór fram hin árlega busavígsla. Nýmemar áttu að mæta í klæðnaði sem alla jafna þykir ekki mjög fínn. Þeim var boðið upp á morgunhressingu sem samanstóð af mysu, lýsi og hákarli. Þá þurfti að syngja fyrir eldri nemendur og leysa ýmsar þrautir.
Aðalvígslan fór svo fram á flötinni hjá Nettó. Þar hafði verið sett upp þrautabraut sem nemendur þurftu að fara í gegnum.
Nú teljast nýnemar fullgildir nemendur í FAS og eru þeir sérstalega boðnir velkomnir í skólann.





Skrifa athugasemd