Nemendur frá Trier í heimsókn í FAS
Í gær komu til Hornafjarðar tæplega þrír tugir nemenda og kennara frá Max-Planck Gymnasium í Tríer í Þýskalandi. Hér voru á ferð nemendur sem okkar nemendur heimsóttu í vor þegar þeir fóru til Þýskalands. Eftir að hafa fengið kvöldmat í Nýheimum fóru nemendur á gistingu á nokkrum stöðum á Höfn auk þess sem ríflega tugur gisti á fjósloftinu á Seljavöllum.
Eftir morgunmat í morgun voru Nýheimar skoðaðir og einnig var farið á Jöklasafnið sem hópnum fannst mjög áhugavert. Héðan heldur hópurinn svo austur á bóginn og mun dvelja næstu daga Egilsstöðum hjá félugum sínum í ME og VA.
Þó hér hafi verið staldrað stutt við voru gestirnir alsælir og þakklátir þeim öllum sem skutu skjólshúsi yfir þá síðast liðna nótt. (fas.is)





Skrifa athugasemd