Ágúst
Víkingaskipið Valtýr
Víkingaskipið Valtýr
Víkingaskipið Valtýr í Hornafjarðarhöfn
Mynd 2 af 3
1 2 3

23.08.2010 Ágúst

Víkingaskipið Valtýr kom til Hornafjarðar

Víkingaskipið Valtýr frá Stykkishólmi kom til Hornafjarðar í vikunni en það er á leið til Noregs.
Þetta er fyrsta langferð víkingaskipsins en í fyrra sumar var því siglt um Breiðafjörðinn. Eigandi og hönnuður skipsins er Sigurjón Jónsson í Skipavík hf. í Stykkishólmi. Smíði skipsins stóð yfir í þrjú ár og alls fóru 20 þúsund vinnustundir í smíðina og útkoman er vissulega glæsileg.  Ganghraði skipsins fyrir vélarafli eru 10-11 mílur en með seglum og hagstæðum byr getur hraðinn orðið um 16 mílur.
Ferðin frá Reykjavík til Hafnar tók einn og hálfan sólarhring og áætlar Sigurjón að ferðin til Færeyja taki svipaðan tíma en þar ætlar hann að hafa viðkomu á leiðinni til Stavanger og jafnvel að líta við í Shetlandseyjum. Sigurjón og ferðafélagar hans tveir ætla síðan að sigla suður með Noregi og til Óslóar þar sem skipið verður geymt í vetur og með vorinu verður siglingum haldið áfram.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica