Ágúst
Árni Guðrun og Matthildur
Matthildur, Árni og Guðrún

23.08.2010 Ágúst

Kostnaður og styrkir Samfylkingarinnar vegna sveitarstjórnarkosninga

Á fundi bæjarráðs 12. júlí sl. lagði áheyrnarfulltrúi Samfylkingarinnar fram tillögu þar sem þeim
tilmælum var beint til þeirra flokka, sem buðu fram í síðustu sveitarstjórnarkosningum, að þeir
upplýstu um heildarkostnað og styrki vegna framboða sinna sl. vor.
Tillagan var samþykkt samhljóða í bæjarráði. Í greinargerð með tillögunni kemur m.a. fram að birting upplýsinga um
kostnað og styrki vegna sveitarstjórnarkosninganna sé eðlilegur liður í því að auka gagnsæi og traust kjósenda á stjórnmálamönnum. Traust kjósenda á kjörnum fulltrúum er nauðsynlegur grunnur fyrir dagleg störf sveitarstjórnarmanna og í anda opinnar og lýðræðislegrar stjórnsýslu.
Samfylkingin fagnar því að bæjarráð hafi tekið undir með áheyrnarfulltrúa Samfylkingarinnar um að nauðsyn þess að fjármál framboðanna séu uppi á borðum og öllum kunn. Á fundi bæjarstjórnar þann 12. ágúst sl. þar sem tillagan var lítillega rædd kom einnig fram stuðningur við tillöguna þótt borið hafi á áhyggjum einstakra bæjarfulltrúa um að of mikið gagnsæi gæti leitt til vandræða við fjármögnun smærri framboða og nýrra.
Í samantekt gjaldkera Samfylkingarinnar á Hornafirði kemur fram að heildartekjur framboðsins vegna kosninganna hafi numið 579.687 kr. en að heildarkostnaður framboðsins vegna kosninganna hafi verið 764.515 kr. Gjöld umfram tekjur voru því 184.928 kr. Tekjur framboðsins koma nær eingöngu frá sveitarfélaginu auk framlags frá Samfylkingunni á landsvísu. Fram kemur
að stærstu útgjaldaliðirnir hjá framboðinu voru prentun og uppsetning blaða og bæklinga og auglýsingar í staðarfjölmiðlum.

Samfylkingin Uppgjör vegna kosninga 2010 (pdf)

f.h. Stjórnar Samfylkingarinnar á Hornafirði
Árni Rúnar Þorvaldsson, formaður

 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica