Hjólað til heilla
Félagarnir Haraldur Hreggviðsson og Haraldur Helgason í Lionsklúbbi Njarðvíkur lögðu á stað í hringferð eftir þjóðvegi 1 sl. þriðjudag. Haraldur Hreggviðsson er hjólandi en nafni hans á bíl og er honum til halds og trausts og sér um allt sem ,,redda‘‘ þarf á ferðalaginu. Ferðin er farin til að safna fjármunum fyrir Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna. Þeir félagar komu til Hafnar um kl. 17.30 á föstudaginn þar sem félagar úr Lionsklúbbi Hornafjarðar tóku á móti þeim.
Haraldur Hreggviðsson sagði ferðina hafa gengið mjög vel og gott veður og fyrsta daginn hjólaði hann á 6 tímum í Skóga 155 km. Hann sagði viðtökur Lionsmanna á Höfn hreint frábærar og ekki þurfti annað en nefna að okkur langaði í humar þá var hrúgaður diskur af gómsætum humar kominn fyrir framan okkur og Jón Sölvi kokkur og Lionsmaður nestaði okkur myndarlega þegar haldið var áfram til Djúpavogs sem var næsti áfangi.
Þeir félagar áætla 10-13 daga í verkefnið en reynslan af svona hjólaferðum hefur verið sú að menn hafa verið að hjóla um 100 km. á dag en veður hefur mikil áhrif á hraða ferðarinnar.
Stofnuð hefur verið síða á Facebook fyrir verkefnið en hana má finna með því að slá inn leitarorðið „Hjólað til heilla“ á facebook.com.
Þeir sem vilja leggja fjáröflun Lionsklúbbs Njarðvíkur lið geta gert það með því að leggja inn á reikning 1109-05-412828 kt. 440269-6489.




Skrifa athugasemd