Hjólað hringinn í kringum landið til styrktar Rannsóknarstofu í krabbameinsfræðum.
Hjólað til styrktar góðu málefni
Alissa R. Vilmundardóttir er nemandi við Háskóla Íslands og hún lagði af stað í hjólaferð í kringum landið þann 9. ágúst til að kynna og styrkja Rannsóknastofu í krabbameinsfræðum. Slagorð ferðarinnar er „Okkar leið – allra málefni“ og er Frú Vigdís Finnbogadóttir sérstakur verndari hennar. Alissa hjólar eftir Þjóðvegi 1 og markmiðið er að klára leiðina á 10 dögum. Hún mun skrifa dagbók um ferðina og uppfæra myndir daglega á heimasíðu átaksins: www.facebook.com/Okkar.leid Hún verður einnig með svokallaðan Depil á sér, sem er GPS staðsetningartæki sem uppfærir staðsetningu hennar á mínútu fresti. Þannig getur fólk fylgst með ferðinni í rauntíma á slóðinni: www.depill.is/Okkar.leid. áætlað er að Alissa komi til Hornafjarðar miðvikudaginn 11. ágúst og er öllum frjálst að hjóla með henni inn í bæinn. Tökum vel á móti henni og styrkjum gott málefni. Reikningsnúmer átaksins: 0115-15-630829, kt. 020887-2069. Allir styrkir renna óskiptir í sjóðinn. Símalína til styrktar málefninu: 904-1339 en þá leggjast 1.339 krónur á reikning verkefnisins, sem samsvarar einni krónu á hvern kílómetra sem hjólaður er.





Skrifa athugasemd