Heildarkostnaður Framsóknarmanna vegna framboðsins 2010
Í samræmi við beiðni bæjarráðs Sveitarfélagsins Hornafjarðar þess efnis að öll framboð sem buðu fram í til bæjarstjórnar í sveitarstjórnarkosningum vorið 2010, leggi fram upplýsingar um heildarkostnað og styrki (t.d. bein fjárframlög einstaklinga og lögaðila, afslættir af leigu kosningamiðstöðva, aðrir afslættir og annað sem talist getur styrkur) vegna framboða sinna, hefur framboð Framsóknarmanna og stuðningsmanna tekið saman yfirlit yfir útlagðan kostnað við vegna bæjarstjórnarkosninganna og sent til bæjarráðs. Til að upplýsa almenning einnig, hefur framboðið ákveðið að senda sömu upplýsingar til héraðsmiðlanna Eystrahorns og Ríki Vatnajökuls.
Í samantektinni sem nær frá 1. nóvember 2009 til 20. júlí 2010, kemur fram að heildarkostnaður við framboðið nemur rúmlega 1,1 milljón króna en tekjur á sama tíma eru rúm ein milljón. Í samantektinni kemur einnig fram að á kjörtímabilinu 2006 - 2009 fékk framboð Framsóknarmanna og stuðningsmanna þeirra alls 1.072.064 krónur í styrk frá Sveitarfélaginu Hornafirði samanber ákvæði laga nr. 162/2006. Þar af voru kr. 450.000.- greiddar fyrr á kjörtímabilinu, en eftirstöðvar kr. 622.064.- greiddar þann 6. nóvember 2009. Styrkur vegna ársins 2010 var síðan greiddur 30. júní 2010.
Framboð Framsóknarmanna og stuðningsmanna þeirra vill einnig samhliða birtingu reksturs við framboðið, sérstaklega koma á framfæri þakklæti til þeirra fjölmörgu félagsmanna og annarra velgjörðarmanna sem lögðu framboðinu lið sem sama hætti og viðgengist hefur um árabil, í formi margskonar vinnuframlags, s.s. hvað varðar framsetningu á efni en ekki síður við það að glæða kosningamiðstöðina lífi með viðveru sinni, ljóðaskrifum, kaffiuppáhellingum og fjölmörgum matar- og kökusendingum. Slíkt verður aldrei metið til fjár en er nauðsynlegur þáttur hverju framboði.
Rekstrarreikningur 1.nóv. 2009 til 20. júlí 2010
Framboð Framsóknarmanna og stuðningsmanna þeirra.




Skrifa athugasemd