Góð aðsókn í sundlaugina
Tæplega 12.000 gestir komu í Sundlaug Hafnar í júlímánuði er það um 800 gestum færra en í júlí í fyrra mestu munar um minni aðsókn á humarhátíðinni.
Í júní komu 6000 gestir sem er 1900 gestum færra en í júlí í fyrra. Margir tala um að HM í fótbolta hafi haft áhrif á aðsókn, fólk ekki eins mikið á ferðinni meðan á henni stóð. Mikið hefur verið um heimsóknir erlendra ferðamanna í sundlaugina í sumar.
Auk þess að taka á móti gestum í sund hafa farið fram sundæfingar hjá Sundeild Sindra og eins hefur verið boðið upp á sundnámskeið fyrir fólk á öllum aldri. Góð þátttaka hefur verið og sérlega hafa skriðsundsnámskeið fullorðinna notið vinsælda.
Starfsfólki sundlaugarinnar finnst gestir ánægðir með mannvirkið og þá þjónustu sem sundlaugin veitir. Gestir geta fengið sér góðann sundsprett í lauginni, farið í þrjár mismunandi rennibrautir,farið í gufubað, slakað á í nuddpottinum og látið líða úr sér í heitari pottinum auk þess að koma sér vel fyrir í vaðlauginni sem er mjög vel nýtt, sérstaklega af fjölskyldunni. Þess má geta að í byrjun júlí kom heilbrigðiseftirlitið í eftirlitsferð í sundlaugina og tók sýni af baðvatninu og komu allar sýnaprufur vel út.
Endilega kíkið í heimsókn í sundlaugina sem oftast og njótið þess.




Skrifa athugasemd