Sveinbjörg í úrslitum á Heimsmeistaramóti unglinga
Sveinbjörg Zophaníasdóttir varð í áttunda sæti í úrslitum langstökksins á heimsmeistaramóti unglinga í frjálsíþróttum í Moncton í Kanada um helgina. Sveinbjörg stökk 5,94 metra og var aðeins sentímetra á undan næsta keppanda en alls tóku 12 stúlkur þátt í úrslitum langstökksins. Sveinbjörg stökk 5,79 metra í undankeppninni
Sveinbjörg gerði öll sex stökk sín í úrslitakeppninni lögleg. Stökksería hennar var sem hér segir: 5,75 (-0,3) - 5,75 (0,1) - 5,94 (-0,5) - 5,61 (-0,1) - 5,72 (0,9) - 5,54 (0,0) - vindmælingar innan sviga. Sveinbjörg hefur lengst stokkið 6,10 metra.
Stúlka frá Kúbu vann langstökkið á HM. Hún stökk 6,41 metra. Annar varð kínverskur keppandi með 6,23 og þriðja varð úkraínsk stúlka með 6,20.
Sveinbjörg byrjaði keppnina með 22. besta árangur í heildina en náði að skjóta sér upp í 8. sæti í úrslitum á föstudaginn var með næst lengsta stökki sem hún hefur stokkið á ferlinum, 5.92 metrar. Fyrir um mánuði síðan náði Sveinbjörg lágmarki á þetta mót í langstökki en þess má geta að hún hefur aðallega æft í vetur fyrir sjöþraut en ekki einbeitt sér sérstaklega að langstökkinu sem hún hefði örugglega gert ef hún hefði vitað að hún væri á leið á Heimsmeistaramót í langstökki. En með þessu stökki náði hún lágmarki á Evrópumeistaramót 19 ára og yngri sem fram fer í Eistlandi næsta sumar. Þetta heimsmeistaramót er fyrir aldurinn 19 ára og yngri en þess má geta að í langstökkskeppninni voru allar stúlkurnar ári eldri en Sveinbjörg en hún er aðeins 18 ára. Því telst þetta mjög góður árangur.
Næsta mót sem Sveinbjörg keppir á er Norðurlandameistaramót 19 ára og yngri á Akureyri í 28. ágúst. Þar keppir hún fyrir Íslandshönd í langstökki og 4x100 metra boðhlaupi.




Skrifa athugasemd