Júlí
Þorri sjálfsmynd
Þorri sjálfsmynd
Mynd: Þorvarður Árnason
Mynd 1 af 4
1 2 3 4

21.07.2010 Júlí

Ljósmyndabók um Jökulsárlón

 

Bókaútgáfan Opna hefur gefið út bókina Jökulsárlón – Árið um kring eftir Þorvarð Árnason, forstöðumann Háskólasetursins á Hornafirði. Bókin kemur út í fjórum útgáfum; íslenskri, enskri, franskri og þýskri. Myndirnar í bókinni eru ríflega eitt hundrað talsins. Þær eru allar teknar við Jökulsárlón á Breiðamerkursandi, flestar á um tólf mánaða tímabili frá maí 2009 til apríl 2010, og sýna Lónið því á mismunandi árstímum, frá ólíkum sjónarhornum og við misjöfn veðurskilyrði. Í bókinni er meðal annars að finna fjölmargir myndir af Lóninu í vetarbúningi en þá eru litirnir í jökunum sterkastir og margbreytilegastir. Bókin er innbundin og 128 bls. að stærð. Hún verður fáanleg í helstu bókabúðum landsins og einnig hjá ýmsum söluaðilum á Hornafirði.

Höfundur bókarinnar, Þorvarður Árnason, hefur búið á Höfn frá því um mitt ár 2006. Hann er umhverfisfræðingur og kvikmyndagerðarmaður að mennt. Þorvarður hefur haldið nokkrar einkasýningar á ljósmyndum, síðast í vor sem leið en þá hélt hann útisýningu á myndum sínum frá Hoffellsjökli, í tengslum við Vetrarhátið Ríkis Vatnajökuls. Jökulsárlón – Árið um kring er fyrsta ljósmyndabók hans.

Nánari upplýsingar um bókina má finna hér.  

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica