Júlí
Selma og grallararnir
Selma og grallararnir
Mynd 1 af 2
1 2

20.07.2010 Júlí

Sprellað í sveitinni

Ný barnabók um grallarana þrjá Glingló, Dabba og Rex

Út er komin barnabókin Glingló, Dabbi og Rex – Sprellað í sveitinni.
Þetta er fjórða bókin í bókaflokknum Grallarasögur þar sem sögupersónur, kisurnar Glingló og Dabbi og hundurinn Rex, fræða unga lesendur um raunverulega ævintýrastaði og gefa ímyndunaraflinu um leið lausan tauminn.  

Selma Hrönn Maríudóttir vefhönnuður og rafeindavirki er höfundur grallaranna. Hún semur vísur og texta í bókunum og sér um hönnun og uppsetningu á vefnum http://www.grallarar.is/ sem styður við bækurnar.  Teikningar eru eftir Brynhildi Jenný Bjarnadóttur sem lokið hefur mastersnámi í teiknimyndagerð. 


Alvöru grallarar

Grallararnir eru rammíslenskir og eiga sér lifandi fyrirmyndir í Sandgerði, en persónur byggja á gæludýrum höfundar.  Kisurnar Glingló og Dabbi sem nú eru 12 ára gamlar og hundurinn Rex sem er 4 ára hafa verið uppspretta ótal hugmynda og uppátækja í gegnum árin.

Sprellað í sveitinni
Í þessari bók sprella vinirnir í sveitinni.  Glingló hrekkir bola og telur sig sjá draug í fjósinu. Dabbi skoðar hamingjuegg og smakkar ylvolga mjólk beint úr kúnni. Rex leikur listir á heyrúllu og sýnir snilldartakta í réttunum.  Og ævintýrin eru á hverju strái.

Vísur og texti
Bækurnar eru ætlaðar börnum á aldrinum 2-6 ára.  Sögurnar eru í vísnaformi og vel til þess fallnar að auka orðaforða barna en einnig sagðar á einföldu máli fyrir yngstu lesendurna.
Dabbi, Glingló og Rex hlusta á ævintýrin um sig.

Heimasíða og ókeypis afþreying

Félagarnir eiga heimasíðu sem heitir http://www.grallarar.is/ og þar má finna ýmsa skemmtilega leiki, vísnahorn, litabók, uppskriftir og fleira.

Ævintýri fyrir fjölskylduna
Það er auðvelt að rata í spennandi ævintýri og kostar yfirleitt lítið nema úthaldið.  Tilgangurinn með bókunum er m.a. að benda á skemmtilega afþreyingu fyrir grallara á öllum aldri.

 

Bókin fæst í netverslun okkar http://www.grallarar.is/ auk þess sem hún er fáanleg helstu bókabúðum landsins.

 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica