Júlí
Hvanneyjarviti_IMG_7570
Hvanneyjarviti_IMG_7570
Hvanneyjarviti_IMG_7570

16.07.2010 Júlí

Erlend seglskúta strandaði í innsiglingunni

Erlend seglskúta með nokkra menn um borð, strandaði í innsiglingunni til Hafnar í nótt, en var bjargað á flot og að bryggju.

Skipstjórinn hafði afþakkað aðstoð hafnsögumanns, en þegar hann átti skammt ófarið að bryggju, hreif straumur skútuna og bar hana upp á sandrif.

Innsiglingin til Hafnar getur verið varasöm fyrir ókunnuga, vegna strauma og grynninga. Þó nokkuð margar erlendar skútur eru hér við land um þessar mundir, líklega fleiri en á sama tíma undanfarin ár, að mati vaktstöðvar siglinga. (visir.is)

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica