Sumargleði Kimi records á Hornafirði
Sumargleði Kimi Records er á ferð um landið og heldur tónleika í Pakkhúsinu fimmtudaginn 15. júlí kl. 20:00. Hljómsveitirnar sem koma fram eru Kimono, Tape Tum, Stafrænn Hákon, Quadruplos og Sudden Weather Change. Þessi mikli hópur er í hringferð um landið og kemur fram á tónleikum í Reykjavík, Listahátíðinni Lunga á Seyðisfirði og Populus Tremula (í Listagilinu) á Akureyri.
Miðaverð á alla tónleika er 1.000 kr. og verða plötur og annar varningur til sölu á spottprís.
Hljómsveitirnar:
kimono – http://www.kimono.is/
Tape Tum – www.myspace.com/tapetum
Sudden Weather Change – http://www.suddenweatherchange.com/
Quadruplos – http://www.myspace.com/quadruplos
Stafrænn Hákon – http://www.shakon.com/





Skrifa athugasemd