Júlí
Sólarlag yfir Hornafirði (Mynd: Einar Björn)
Sólarlag yfir Hornafirði (Mynd: Einar Björn)
Sólarlag yfir Hornafirði (Mynd: Einar Björn)

12.07.2010 Júlí

Markaðs- og kynningarstarf hjá Sveitarfélaginu Hornafirði

Á fyrsta fundi atvinnu- og menningarmálanefndar var ákveðið að hefja vinnu að markaðs- og kynningarstarfi hjá sveitarfélaginu. 
Á fundinum var rætt um að slíkt starf ætti fyrst og fremst að ná til þriggja hópa.  Í fyrsta lagi ferðamanna og þannig myndi sterkara markaðs og kynningarstarf efla ferðaþjónustufyrirtæki og auka arðsemi í greininni.  Í öðru lagi yrði markaðs- og kynningarstarfið unnið þannig að fyrirtæki sem vilja ná rótfestu á Hornafirði geti nýtt sér kynningarefni í markaðssetningu á afurðum sínum og þjónustu, svo sem gagnaver og vatnsverksmiðja.  Í þriðja lagi er hugmyndin að markaðs- og kynningarstarfið nái til þeirra sem áhuga hafa á því að flytjast búferlum til Hornafjarðar.

Vinnan er á byrjunarreit og vill Atvinnu- og menningarmálanefnd fá sem flesta til liðs við sig í þessa vinnu.  Fyrsta skrefið er að óska eftir að áhugasamir einstaklingar um verkefnið gefi sig fram og sendi inn hugmyndir sínar og ábendingar um þetta efni á hjaltivi@hornafjordur.is eða í síma 470-8016.  Í framhaldinu mun nefndin halda opna fundi og leita eftir frekara samráði um vinnu að markaðs- og kynningarmálum fyrir sveitarfélagið. 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica