Humarhátíðarmót Skinneyjar-Þinganess í Golfi
Humarhátíðarmótið í Golfi fór fram um helgina og voru það 35 vaskir golfarar sem að létu ekki rok og rigningu á sig fá og fóru 18 holurnar, enda meðal annars eðal humarsúpa í boði sem yljaði mönnum eftir níu holurnar.
Úrslit voru þessi
Besta Skorið:
1. Þórður Jónsson GR 84 högg
2. Bjarni Guðmundur Jónsson GO 86 högg
3. Halldór Steinar Kristjánsson GHH 89 högg
Punktakeppni Karlar
1. Halldór Steinar Kristjánsson GHH 32 punktar
2. Þórður Jónsson GR 32 punktar
3. Kristján Vífill Karlsson GHH 31 punktar
4. Hafsteinn Viðar Jensson GR 31 punktar
Punktakeppni Konur
1. Guðrún Júlía Jónsdóttir HH 29 punktar
2. Þuríður Ingólfsdóttir GFH 28 punktar
3. Anna Eyrún Halldórsdóttir GHH 27 punktar
Einnig voru veitt verðlaun fyrir að vera næstur holu á öllum par þrjú holum og dregið var úr skorkortum og svo fengu allir humarpoka í teyggjöf.
Golfklúbburinn vill sérstaklega þakka Skinney þinganes fyrir að gefa vinninga og humarsúpu og golfurunum sem spiluðu golf við áhugaverðar aðstæður.





Skrifa athugasemd