Júlí
KPMG
KPMG
Frá vinstri talið: Sigurjón Örn Arnarson, sem verður starfsmaður KPMG á Hornafirði, Hlynur Sigurðsson sem kemur til með að bera ábyrgð á endurskoðun Sveitarfélagsins Hornafjarðar, Hermann Hansson og Jón S. Helgason stjórnarformaður KPMG.
Mynd 1 af 2
1 2

02.07.2010 Júlí

KPMG opnar starfstöð á Hornafirði

Bókhaldsstofan ehf. og KPMG rituðu undir samstarfssamning föstudaginn 2. júlí 2010.  Samningurinn felur í sér að KPMG opnar starfstöð með löggiltum endurskoðanda í sama húsnæði og Bókhaldsstofan ehf. að Krosseyjarvegi  17, á Höfn.  Markmið samningsins er að veita viðskiptavinum samningsaðila góða alhliða þjónustu hvað varðar bókhald, skattamál, ráðgjöf og endurskoðun.

KPMG hefur víðtæka reynslu af reikningsskilum og endurskoðun smærri og stærri aðila og hefur m.a. starfað mikið fyrir sveitarfélög og sjávarútvegsfyrirtæki.  Hjá KPMG starfa einnig fjölmargir sérfræðingar á sviði skattamála og fyrirtækjaráðgjafar.

Við sama tilefni skrifaðu KPMG og Sveitarfélagið Hornafjörður undir samning um endurskoðun ársreikninga sveitarfélagsins fyrir árin 2010 til 2014. Forsvarsmenn beggja aðila telja að þeir samningar sem undirritaðir hafa verið séu öllum aðilum til hagsbóta og styðji við gróskumikið atvinnulíf á svæðinu.  Einnig sé mikilvægt að geta boðið upp á sérfræðiþjónustu á sviði endurskoðunar, reikningsskila og skattamála heima í héraði.

Gert er ráð fyrir að starfstöð KPMG verði opnuð í ágúst.


Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica