Júlí
Pálmi Freyr í fyrsta sætið á Lex Games 2010
Síðastliðna helgi var í Hafnarfirði haldin jaðarsports hátiðin Lex games dagana 26. til 27. júní þar sem allir helstu jaðarsportistar komu saman til keppni. Meðal annars var keppt í Rally, motocross, BMX, Torfæru, Freestyle motocross og mörgum fleiri greinum.
Heimamaðurinn Pálmi Freyr Gunnarsson gerði sér lítið fyrir og vann fyrsta sæti í Freestyle motocross og fékk einnig verðlaun fyrir flottasta "trickið" en Freestyle motocross gengur út á að stökkva á motocross hjólum og sýna ýmsar listir í loftinu en það voru komnir saman helstu freestyle-istar til keppni og þar á meðal einn erlendur keppandi.





Skrifa athugasemd