Júlí

Flugeldasýning á Jökulsárlóni

Flugeldasýningin í Jökulsárlóni verður laugardaginn 28.ágúst. - 30.07.2010 Fréttir

Í fyrra mættu yfir eittþúsund og fimmtíu manns á flugeldasýninguna, nú verður hún færð aftur um tvær vikur. Lesa meira
 
1mfkvk1

Nýr og glæsilegur gervigrasvöllur tekinn í notkun. - 29.07.2010 Fréttir

Fyrsta æfingin á nýja gervigrasvellinum í Sveitarfélaginu Hornafirði

Lesa meira
 
Sveinbjörg Zophoníasdóttur

Sveinbjörg í úrslitum á Heimsmeistaramóti unglinga - 27.07.2010 Júlí

Sveinbjörg Zophaníasdóttir varð í áttunda sæti í úrslitum langstökksins á heimsmeistaramóti unglinga í frjálsíþróttum í Moncton í Kanada um helgina.

Lesa meira
 
Guðný og Peter

Einstakur menningarviðburður  í Suðursveit - 25.07.2010 Menning

Tónleikar Guðnýjar Guðmundsdóttur fiðluleikara og Peters Máté píanóleikara Lesa meira
 
Einar Ásgeir Ásgeirsson

Einar Ásgeir tvöfaldur íslandsmeistari - 22.07.2010 Sindra fréttir

Dagana 17. og 18. júlí var Meistaramót Íslands 15-22 ára í frjálsum íþróttum haldið á svæði FH í Hafnarfirði. Þangað fóru 3 vaskir sveinar á vegum USÚ. Lesa meira
 
Þorri sjálfsmynd

Ljósmyndabók um Jökulsárlón - 21.07.2010 Júlí

Myndirnar í bókinni eru ríflega eitt hundrað talsins. Þær eru allar teknar við Jökulsárlón á Breiðamerkursandi, flestar á um tólf mánaða tímabili frá maí 2009 til apríl 2010, og sýna Lónið því á mismunandi árstímum, frá ólíkum sjónarhornum og við misjöfn veðurskilyrði

Lesa meira
 
Íslandsmeistarar Sindra 3. flokkur kvenna 2009

Landsliðskonur í fótbolta á Höfn - 20.07.2010 Sindra fréttir

Landsliðskonurnar Katrín Ómarsdóttir og Þóra B. Helgadóttir eru hér á Höfn í dag 20. júlí Lesa meira
 
Selma og grallararnir

Sprellað í sveitinni - 20.07.2010 Júlí

Ný barnabók – Sprellað í sveitinni
Sagan á bak við grallarana þrjá: Glingló, Dabba og Rex - þeir eru til í raun og veru og eiga heima í Sandgerði

Lesa meira
 
Hvanneyjarviti_IMG_7570

Erlend seglskúta strandaði í innsiglingunni - 16.07.2010 Júlí

Erlend seglskúta með nokkra menn um borð, strandaði í innsiglingunni til Hafnar í nótt, en var bjargað á flot og að bryggju Lesa meira
 
Steinaferð 2010

Steinaferð í Laxárdal - 16.07.2010 Menning

Á þriðjudaginn var lagði upp frá Menningarmiðstöð hópur á leið í steinaleit. Sverrir Scheving Thorsteinsson jarðfræðingur var steinráðgjafi í ferðinni Lesa meira
 
Sumargleðin Kimi records

Sumargleði Kimi records á Hornafirði - 13.07.2010 Júlí

Sumargleði Kimi Records er á ferð um landið og heldur tónleika í Pakkhúsinu fimmtudaginn 15. júlí kl. 20:00 Lesa meira
 
Axel Jónsson

Axel Jóns veiddi um 24 punda lax í Laxá í Kjós - 13.07.2010 Júlí

Á sunnudag veiddi stórskipstjórinn og Glófaxamaðurinn Axel Jónsson í Laxá í Kjós einn stærsta lax sem veiðst hefur á þessu ári. Lesa meira
 
Sólarlag yfir Hornafirði (Mynd: Einar Björn)

Markaðs- og kynningarstarf hjá Sveitarfélaginu Hornafirði - 12.07.2010 Júlí

Á fyrsta fundi atvinnu- og menningarmálanefndar var ákveðið að hefja vinnu að markaðs- og kynningarstarfi hjá sveitarfélaginu. Lesa meira
 
Sveinbjörg og Jón Snorri

Fjórir Hornfirðingar í eldlínunni á MÍ í frjálsíþróttum. - 12.07.2010 Júlí

Þau Sveinbjörg Zophoníasdóttir, Jón Snorri Þorsteinsson USÚ, Bjarni Malmquist Fjölni og Vigfús Dan Sigurðsson ÍR voru heldur betur í eldlínunni á MÍ aðalhluta um helgina.

Lesa meira
 
Vinnuskóli I 2010

Starf vinnuskólans sumarið 2010 - 10.07.2010 Fréttir

Unglingarnir hafa staðið sig gríðarlega vel og eiga mikið hrós skilið fyrir störf sín

Lesa meira
 
Grilldagur 1. júlí 2010

Grillað í dagvist! - 09.07.2010 Fréttir HSSA

Föstudaginn 1. júlí sl. var árlegur grilldagur dagvistar HSSA. Þrjátíu manns mættu í grillið og var mikil gleði.

Lesa meira
 
Hans klaufi

Leikhópurinn Lotta sýnir Hans klaufa í Hornafirði - 08.07.2010 Menning

Fimmtudaginn 15. júlí sýnir Leikhópurinn Lotta nýjasta verk sitt, Hans klaufa á flötunni við Hótel Höfn á Höfn í Hornafirði. Lesa meira
 
Heyskapur við Gömlubúð

Börnin í gamaldags heyskap - 08.07.2010 Menning

Á þriðjudaginn fór barnastarf Menningarmiðstöðvar í heyskap.  Ekki hafði viðrað vel til þess háttar starfa svo að jafnvel var haldið að fresta yrði heyskap að þessu sinni. 

Lesa meira
 
Humarhátíð 2010

Humarhátíð 2010 lokið - 07.07.2010 Humarhátíð Fréttir

Þá er Humarhátíð í ár lokið og gekk hún ljómandi vel sé tekið mið af veðurfarinu sem við höfðum því miður enga stjórn á. Dagskráin riðlaðist lítillega vegna veðurs en hún var flutt inn í íþróttahúsið á laugardeginum.

Lesa meira
 
Árgangsmót

Árgangsmót 1954 - 1957 - 07.07.2010 Júlí

Fimmtudaginn fyrir humarhátíð var blásið til árgangamóts fjögurra árganga (1954-1957) sem gengu saman í barnaskóla á Höfn. Lesa meira
 
Humarhátíðarmót Skinney Þinganes 2010

Humarhátíðarmót Skinneyjar-Þinganess í Golfi - 07.07.2010 Júlí

Humarhátíðarmótið í Golfi fór fram um helgina og voru það 35 vaskir golfarar sem að létu ekki rok og rigningu á sig fá  og fóru 18 holurnar, enda meðal annars eðal  humarsúpa í boði sem yljaði  mönnum eftir níu holurnar.

Lesa meira
 
Parket

Pillaðu þig á Humarhátíð - 02.07.2010 Humarhátíð Fréttir

Snillingarnir í Parket hafa nú sett saman Humarhátíðarlag fyrir hátíðina í ár. Hér er á ferðinni grípandi rokk og ról að hætti þeirra Parket sveina. Það var Hafþór Smári Imsland sem að tók upp lagið fyrir sveitina og hljóðblandaðiAllir aðdáendur Humarhátíðar og Parkets eru hvattir til að hlusta á lagið og um að gera að læra textann utan að fyrir kvöldið.

Lesa meira
 
KPMG

KPMG opnar starfstöð á Hornafirði - 02.07.2010 Júlí

Bókhaldsstofan ehf. og KPMG rituðu undir samstarfssamning föstudaginn 2. júlí 2010. Samningurinn felur í sér að KPMG opnar starfstöð með löggiltum endurskoðanda í sama húsnæði og Bókhaldsstofan ehf. að Krosseyjarvegi 17, á Höfn.

Lesa meira
 
Tónskólinn

Big Band tónleikar í Nýheimum - 01.07.2010 Humarhátíð Fréttir

Big band tónleikar verða í Nýheimum á laugardag á Humarhátíð klukkan 15:00. Í hljómsveitinni eru nemendur og kennarar Tónskóla Austur - Skaftafellssýslu, ásamt fyrrverandi nemendurm skólans.

Lesa meira
 
Lolla

Lolla verður kynnir á Humarhátíð 2010 - 01.07.2010 Humarhátíð Fréttir

Ólafía Hrönn Jónsdóttir, betur þekkt sem Lolla verður kynnir á Humarhátíð á Höfn í ár. Lolla er Hornfirðingum góðkunn þar sem hún ólst upp á Hornafirði ásamt systrum sínum, sem enn eru búsettar hér.

Lesa meira
 
Vedur_3.06.2005 kl.12:35

Húsbíll fauk við Sandfell í Öræfum - 01.07.2010 Júlí

Lögreglan á Höfn vill koma því á framfæri að ferðaveður er slæmt á milli Fagurhólsmýrar og Skaftafells og ferðamenn eru varaðir við að keyra með húsbíla eða aðra tengivagna á þessum slóðum. Lesa meira
 
Lex Games 2010

Pálmi Freyr í fyrsta sætið á Lex Games 2010 - 01.07.2010 Júlí

Heimamaðurinn Pálmi Freyr Gunnarsson gerði sér lítið fyrir og vann fyrsta sæti í Freestyle motocross og fékk einnig verðlaun fyrir flottasta "trickið" Lesa meira
 
Gangári

Var það Gangári? - 01.07.2010 Humarhátíð Fréttir

Gangárinn er náungi nokkur sem hefur verið uppi frá því fyrstu menn muna. Hann man allt sem gerst hefur, þekkir hvern krók og kima hvert sem litið er til sjávar eða sveita.

Lesa meira
 

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica