Öðruvísi sögusýning um Svavar Guðnason opnar í Kaffi Tuliníusi
Í tilefni af Humarhátíð á Höfn opnar sýningin „Listin sprettur af lífinu sjálfu en ekki neinni fagurfræði“ um Svavar Guðnason listmálara í Kaffi Tuliníusi. Sýningin er unnin af Huldu Rós Sigurðardóttur menningar- og listfræðingi en hún hefur undanfarið unnið að meistaraverkefni sínu um listamanninn. Sýningin inniheldur aðallega tilvitnanir en einnig ljósmyndir, viðtöl og fleira sem tengist Svavari sem persónu og Hornfirðingi. Hulda Rós áætlar síðan að opna stærri sýningu í haust þar sem verður enn frekar leitast eftir að kynna Hornfirðingum þennan merkilega listamann á lifandi og skemmtilegan hátt.
Á sýningunni í Kaffi Tuliníusi er markmiðið að áhorfandinn kynnist Svavari betur sem persónuleika; listheimspeki hans og lífsviðhorfum. Orðin verða listaverkið sjálft en um leið er sögunni gerð skil með óbeinum hætti. Óskin er sú að Svavar lifni við á sýningunni og að áhorfandinn skynji hversu litríka persónu um var að ræða.
Sýningin opnar fimmtudaginn 1. júlí og verður opin yfir Humarhátíð á Höfn. Nánari sýningartími verður auglýstur síðar.





Skrifa athugasemd