Fasteignamat hækkar á Höfn en lækkar víða annarsstaðar
Fasteignaeigendur um allt land fá í dag og á morgun tilkynningar um niðurstöður fasteignamats fyrir árið 2011. Heildarmat fasteigna á landinu öllu lækkar um 8,6% og verður rúmlega 4.000 milljarðar króna.
Mat íbúðarhúsnæðis á landinu öllu lækkar um 10% og verður rúmlega 2.600 milljarðar króna. Þetta var kynnt á blaðamannafundi í dag.
Í lögum, sem tóku gildi í byrjun árs 2009, er kveðið á um að hver einasta fasteign skuli metin árlega í ljósi kaupsamninga um sambærilegar eignir og eigendum tilkynnt niðurstaðan í júnímánuði. Þar segir ennfremur að fasteignamat á hverjum tíma skuli endurspegla markaðsverðmæti (staðgreiðsluverð) fasteignar í febrúar.
Fasteignamat íbúðarhúsnæðis fyrir árið 2010 var unnið á síðasta ári í samræmi við nýju lögin. Fasteignamat íbúðarhúsnæðis, sem nú er kynnt vegna ársins 2011, er því gert í annað sinn miðað við breyttar forsendur.
Fyrir tíma núgildandi laga var fasteignamat framreiknað frá ári til árs í samræmi við verðlagsþróun. Voru notaðir framreiknistuðlar fyrir tiltekna eignaflokka í heilum sveitarfélögum eða byggðakjörnum, óháð breytingum á markaðsvirði einstakra eigna.
Nú er notað reiknilíkan sem gefur niðurstöður um hvað staðgreiðsluverð sambærilegra fasteigna á sama svæði hefur verið samkvæmt fyrirliggjandi kaupsamningum.
Heildarfasteignamat á höfuðborgarsvæðinu lækkar um 10,4%, á Suðurnesjum um 7,4%, á Vesturlandi um 6,4%, á Vestfjörðum um 1,2%, á Norðurlandi vestra um 0,7%, á Norðurlandi eystra um 4,4%, á Austurlandi um 0,8% og á Suðurlandi um 3,4%.
Heildarmat fasteigna hækkar hér í sveitarfélaginu Hornafirði um 5,5%, í Vestmannaeyjum um 10,4%, í Skútustaðahreppi um 7,7% og í Grýtubakkahreppi um 6,5%.





Skrifa athugasemd