Júní
Júllí í Sólbæ
Júllí í Sólbæ
Einn af klárari veiðimönnum.

26.06.2010 Júní

Flugukastkennslaá Humarhátíð

Júlíus Guðmundsson, sportveiðimaður, leiðsögumaður og fluguveiðimaður af Guðs náð, verður með flugukastkennslu á föstudags og laugardagsmorgun um Humarhátíðarhelgina.

Júlíus, (oft kallaður Júlli í Sólbæ) er Hornfirðingur, ólst upp í Hagatúninu og bjó lengi á Höfn, hann er ástríðu fluguveiðimaður og fluguhnýtari, hefur fengið viðurkenningar fyrir fluguhnýtingar t.d. tvisvar sinnum fyrstu verðlaun í hnýtingarkeppni á vegum Landsambands stangaveiðifélaga, hann hefur kennt mörgum veiðimanninum tökin á flugustönginni, jafnt einhendu sem tvíhendu, hann hefur um árabil starfað sem leiðsögumaður veiðimanna á vegum veiðiþjónustunnar Strengja sem meðal annars er leigutaki að Breiðdalsá.  Stórir fiskar taka frekar flugu en annað agn segir Júlíus og talar af reynslu því veiðigyðjan hefur gefið honum margann stórfiskinn sem hann sleppir alltaf aftur en tekur nokkra smáfiska til að borða, hann stóð fyrir vakningu veiðimanna á Hornafirði um stofnum Stangaveiðifélags Hornafjarðar, sem því miður er ansi hljótt um þessi árin, segir Júlíus að lokum.

Flugukastkennslan fer fram föstudags- og laugardagsmorgun frá kl.9-12 (næstu helgi).  Nánari upplýsingar og skráning eru hjá Júlla í Sólbæ, sími 699 2087

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica