Júní
Sveinbjörg Zophoníasdóttir
Sveinbjörg Zophoníasdóttir
Mynd 1 af 3
1 2 3

16.06.2010 Júní

Sveinbjörgvalin í A landslið íslendinga sem keppir á Möltu um helgina

Sveinbjörg Zophoníasdóttir, unga frjálsíþróttakona úr USÚ er aldeilis að gera það gott í íþrótt sinni. Hún keppti fyrir Íslandshönd á Norðurlanda Meistaramóti Ungmenna um helgina sem fram fór í Randers í Danmörku.
Sveinbjörg bætti sig um 100 stig í sjöþrautinni, bætti sig í langstökki stökk 5.80 m og vann þá grein, einnig bætti hún sig í 100m grind og 800m hlaupi. Með þessum frábæra árangri vann hún sér inn keppnisrétt með A landsliði fullorðna, sem fer  núna um næstu helgi til Möltu að taka þátt í Evrópubikarkeppni landsliða þar keppi hún í hástökki. Síðan er hún búin að tryggja sér keppnisrétt í Evrópubikarkeppni landsliða í fjölþrautum sem fram fer í Ísrael 26.-27. júní og móðir hennar Guðrún Ingólfsdóttir fer með liðinu þangað sem landsliðsþjálfari.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica