Júní
Bjarni Sæmundsson
Bjarni Sæmundsson
Í Hornafjarðarhöfn
Mynd 1 af 2
1 2

15.06.2010 Júní

Kom síðast til Hafnar fyrir 37 árum þeirra erinda að færa Hafnarbúum birtu og yl

Hafrannsóknarskipið Bjarni Sæmundsson kom  til Hafnar í gærmorgun og lagðist að  Álaugareyjarbryggju um kl.9.00 og var erindið að fá viðgerðarmann til að gera við ljósleiðara í dvergkafbát sem notaður er við neðansjávar myndatökur. 

Síðast kom þetta skip til Hafnar fyrir 37 árum veturinn 1973 og þá þeirra erinda að færa Hafnarbúum birtu og il og kannski töluvert meira, því segja má að með komu skipsins hafi jólin fengið á sig þann blæ sem hæfir þeirri hátíð. Fyrir jól þetta ár 1973 varð Smyrla vatnslaus díselvélarnar á Höfn önnuðu ekki rafmagns þörfinni, rafmagnið var skammtað,  götulýsing slökkt, skólahald fór úr skorðum, fólk flutti úr flest öllum húsum sem voru illa einangruð.  Búið var um þá sem fluttu að heiman á Hótel Höfn. Síðast en ekki síðst þá fór atvinnulíf á staðnum úr skorðum. Fengin var á staðinn færanleg ljósavél sem því miður bilaði á aðfangadag jóla svo að ástandið lagaðist aðeins í stuttan tíma.  Við þessar aðstæður bjó fólk á Höfn sig undir jólahaldið.  En þá kom Hafrannsóknarskipið Bjarni Sæmundsson með sínar öflugu rafmagnsvélar  sem tengdar voru  við veitukerfi Hafnar og allt var upplýst á ný. Skipið var svo hér á Höfn þar til ástandið í raforkumálunum komst í eðlilegt horf. Segja má að Hornfirðingar hafi kvatt þetta skip með hlýjum hugsunum og góðum óskum  þegar það fór frá Höfn eftir að hafa lýst upp seinni daga jóla og áramótin 1973-1974.
Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica