Áætlar að um 4 þúsund tonn af möl fari til Ameríku á þessu ári
Nýlega kom skip til að lesta perlumöl við Austurfjörur og flytur til Ameríku. Að sögn Ómars Antonssonar, sem hefur veg og vanda að útflutningi og sölu á perlumölinni, er mölin notuð í sundlaugar.
Áætlar Ómar að um 4 þús. tonn fari til Ameríku á þessu ári en það er tvö þúsund tonnum minna en undanfarin ár, það er kreppan sem því veldur. Innanlands er aukinn markaður fyrir mölina, hér er hún notuð sem gólfefni, í fiskabúr, ýmsa föndur vinnu og jafnvel skartgripi.
Nýlega var gerð tilraun með mölina í malbik þar sem hlutfallið af henni var 30% og virðist sú tilraun hafa tekist vel einnig stendur til að nota mölina í slitlag á vegi með olíumöl.
Ómar segir Færeyinga áhugasama um kaup á perlumöl og til stendur að þeir sendi skip til að sækja prufu-möl.





Skrifa athugasemd