Töfra fram algjört lostæti með svæðisbundnu sjávarréttahlaðborði
Hótel Edda í Nesjum efnir til þeirrar nýbreytni laugardagskvöldið 12. júní að bjóða uppá ,,svæðisbundið sjávarréttahlaðborð‘‘ með úrvali forrétta, aðalrétta og spennandi eftirrétta úr því besta hráefni sem héraðið hefur uppá að bjóða.
Þar munu hjónin Friðrik V. og Arnrún ásamt starfsfólki hótelsins töfra fram algjört lostæti en þau eru landsþekktir matgæðingar og starfræktu í tíu ár hinn vinsæla veitingastað Friðrik V (fimmta) á Akureyri.
Í viðtali við fréttavefinn segir Friðrik að eftir að þau hættu veitingarekstrinum á Akureyri hafi þau fengið það verkefni að fara á öll Edduhótel á landinu og aðstoða starfsfólkið við að nota hráefni sem fáanlegt væri á viðkomandi svæði. Það má segja að við erum svona einskonar vítamín í þessu segir Friðrik, ég held að þetta sé í mjög góðum málum hér. Við höldum fundi með starfsfólkinu þar sem rætt er um mat ,hefðir og mismunandi sérvisku sem tíðkast á öllum stöðum t. d. eins og hér er talað um flatkökur en þær heita flatbrauð á norðurlandi. Þetta er hluti þess sem halda á í, það eru þessi sérkenni eða sérviska hvernig þetta er hanterað og borið fram. Það er líka ákveðin sjálfbæri ef að ég versla við sjómennina, sláturhúsið eða hvaða framleiðslu sem er á staðnum þá er ég sjálfkrafa að leggja mitt til samfélagsins og þá versla menn við mig á móti.
Mér líst rosalega vel á það hráefni sem framleitt er hér og það er ástæðan fyrir að við byrjum hér, ég þekki vel hvað þetta er gott og ég hef mikið verið í samvinnu við Matís, Ara, Hótel Höfn o.fl. Ég játa að ég er svolítið öfundsjúkur út í þetta verkefni ,,Matur úr ríki Vatnajökuls‘‘ það er svo fallega framselt. Ef talað er við venjulegan íslending er talað um humarinn hér en ég vil meina að fiskurinn hér er miklu stærra mál en menn halda og því vil ég taka fisk almennt en ekki bara humar á sjávarréttahlaðborðið. Hér er stór og mikil fiskvinnsla og aðgangur að hráefninu góður eins eru hér líka skemmtilegar hugmyndir um skötuselslifrina og álinn.
Ég myndi alveg vilja búa hérna, ég upplifi svolítið að fólk í þessu umhverfi er svona samrýmt af því að það telur sig hvorki vera Sunnlendinga eða Austfirðinga og ég held að þetta virki þannig að fólk snúi bökum saman og við erum í saman í liði. Mér finnst þetta svo fallegt hvað menn eru sjálfstæðir og eru eigin herrar og vilja hvorugum hópnum fylgja. Það er gaman að sjá að veitingastaðirnir hér, sem allir eru svæðisbundnir á sinn hátt, eru þó ekki að gera það sama, þetta er rökrétt og kanski er þetta af því að samfélagið hér er passlega stórt. Svo vil ég taka fram að ég er mjög spenntur fyrir þessu verkefni hér sagði Friðrik að lokum.
Fyrir þá sem ekki vilja láta þetta tækifæri fram hjá sér fara eru borðapantanir í síma 444 4850.





Skrifa athugasemd