Júní
Ásgerður Gylfadóttir verður forseti bæjarstjórnar
Í kjölfar sveitarstjórnarkosninga er unnið að því að undirbúa fyrsta fund bæjarstjórnar sem stefnt er að halda þriðjudaginn 15. júní nk. en samkvæmt sveitarstjórnarlögum tekur nýkjörinn bæjarstjórn við störfum 15 dögum eftir kjördag.
Ákveðið hefur verið að Ásgerður Gylfadóttir verði forseti bæjarstjórnar og Reynir Arnarson formaður bæjarráðs. Þá hefur verið ákveðið að endurráða Hjalta Þór Vignisson í starf bæjarstjóra.
Framsóknarflokkurinn hlaut hreinan meirihluta í kosningunum en mun leggja áherslu á góða samvinnu við alla fulltrúa í bæjarstjórn sem og íbúa sveitarfélagsins í þeim viðamiklu verkefnum sem bíða á nýju kjörtímabili.





Skrifa athugasemd