Huldusteinn steinasafn
Laugardaginn 12. júní verður Huldusteinn steinasafn opnað í gamla sundlaugarhúsinu á Höfn. Hjónin Ásbjörn Þórarinsson og Vigdís Vigfúsdóttir eigendur safnsins keyptu gömlu sundlaugina þegar hún var aflögð sem sundlaug og hafa þau unnið að breytingum á húsinu og uppsetning steinasafnsins undanfarna mánuði. Safnið er án efa eitt glæsilegasta steinasafn landsins, litadýrðin er hreint ótrúleg og uppsetning í einu orði sagt, flott. Ásbjörn segir að þótt íslenskir steinar séu í algjörum meirihluta í safninu er þar eitthvað af steinum sem þau hafa fundið erlendis og sumir langt að komnir.
Þegar fréttamaður vefsins leit inn í Huldustein um helgina var ekki annað að sjá en allt væri tilbúið fyrir opnunina og einn og einn gestur kominn að líta á dýrðina. Öllum má ljóst vera að söfnun sem þessi hlýtur að hafa tekið langan tíma og ómælt erfiði og eiga þeir þakkir skildar sem leggja það á sig að leggja fé og vinnu í framkvæmd sem þessa þó svo að áhugaefnið sé bæði ánægja og heilsusamlegt eins og þau hjónin segja.
Ásbjörn og Vigdís hafa frá því þau tóku saman (eins og Ásbjörn orðaði það) ung að árum safnað steinum um allt land, slípað þá og sagað og oft hefur bakpokinn verið þungur þegar heim var haldið úr steinaleit. Mikið af steinunum er úr Oddskarði og Berufirði og minnist Ásbjörn ferða í Oddskarð þegar hann bar stóra steina um 50 kg í 4-5 tíma úr 800 m. hæð og fallegir voru þeir og erfiðisins virði. Árið 1974 fann Ásbjörn hluta af merkilegum steini langt upp í fjalli og 25 árum síðar þegar hann átti þar leið um fann hann þann hluta steinsins sem á vantaði og þegar heim kom kallaði hann í konu sína og sagðist skildi veðja við hana um að hann hafi fundið lokið á steininn sem hann fann þarna 1974 og svarið sem hann fékk var ,,nú ert þú orðinn endanlega ruglaður ef þú heldur það´´ en þetta smellpassaði, alveg ótrúlegt, sagði Vigdís og skellihló.
Umhverfis sundlaugina er komið trégrindverk og allt í kring eru steinar, tré, borð og stólar allt sem þarf til að gera svæðið heillandi og notalegt. Það sem áður voru búningsklefar eru nú nýtt sem sýningapláss. Sundlaugin hefur ekki ennþá fengið hlutverk á sýningarsvæðinu en þess verður varla langt að bíða ef litið er til framkvæmdagleði þeirra hjóna.
Huldusteinn Steinasafn er stórkostlegt framtak sem Hornfirðingar mega vera stoltir af.




Skrifa athugasemd