Undir breðans fjöllum
Útgáfuhátíð í Hofgarði í Öræfum 17. júní 2010
Fjölskylda Þorsteins Jóhannssonar í Svínafelli hefur staðið að útgáfu á völdu efni úr kveðskap hans og nú fer bókin sem hefur hlotið heitið Undir breðans fjöllum að líta dagsins ljós.
Bókin er um 300 bls. og inniheldur ljóð og lausavísur, æviágrip, myndir og skýringartexta. Efnið varpar ljósi á lífshlaup höfundar allt frá því að hann var barn og vitnar á margan hátt um aðstæður í byggðarlaginu á 20. öldinni. Þorsteinn var fæddur 1918 og hann lést 1998. Yrkisefnin eru ýmist vegna hátíðlegra tilefna, sögulegra atburða eða um líðandi stund. Auk hinna stærri ljóða er víða slegið á létta strengi bæði í dagsins önn og við skemmtanahald. Einnig er skólastarfi Þorsteins gerð nokkur skil þar sem vísnagerð kemur mikið við sögu, bæði til að létta lund í skólastofunni og til að festa námsefnið í minni.
Bókaútgáfan Hólar gefur bókina út og annast dreifingu hennar, en fjölskyldan ætlar að gera sér dagamun í tilefni af þessum áfanga og efna til útgáfuhátíðar í Hofgarði 17. júní kl. 15:00. Bókin verður þar til sölu á afsláttarverði á kr. 3500,- og einnig er möguleiki á að afgreiða hana til sendingar með gíróseðli skv. pöntunum til okkar.
Öræfingar og allir velunnarar þessa verkefnis, nær og fjær, eru innilega velkomnir að deila með okkur þessari síðdegisstund í Hofgarði og þiggja kaffiveitingar. Tilkynningar um þátttöku mega berast til einhvers okkar systkinanna. Sveitarfélagið Hornafjörður og Menningarráð Austurlands styrktu útgáfuna.
Fyrir hönd fjölskyldunnar
Börn Þorsteins: Guðjón, Jóhann, Pálína og Halldór
Guðjón : 478 1660
Jóhann: hafdis@klaustur.is, 478 1636a
Pálína: palina@simnet.is, 478 1760
Halldór: halldorth@simnet.is, 568 1464





Skrifa athugasemd