Júní
Sjómannadagsblað Austurlands
Sjómannadagsblað Austurlands
Mynd 1 af 2
1 2

04.06.2010 Júní

Sjómannadagsblað Austurlands 2010

Sjómannadagsblað Austurlands er komið út og er það 16. árgangur blaðsins sem líkt og undanfarin ár er um 90 blaðsíður að stærð. Hátt á annað hundrað nýrra og gamalla ljósmynda prýða blaðið en efnið tengist sjómennsku og útgerð á Austurlandi, fyrr og síðar.

Á meðal efnis í Sjómannadagsblaði Austurlands í ár er ítarleg frásögn af hörmulegu sjóslysi er Eskifjarðarbáturinn Hrönn SH-149 fórst í mynni Reyðarfjarðar árið 1979. Sex sjómenn voru um borð og fórust þeir allir en Hrönn var að koma af vertíð frá Breiðdalsvík. Í blaðinu er einnig myndræn frásögn frá því er Fáskrúðsfirðingurinn Albert Kemp fór þrjá siglingatúra með Vetti SU-103 haustið 1957 og Eskfirðingurinn Guðni Ölversson rifjar upp síldveiðitúra í Norðursjónum sumarið ´68. Heimir Þór Gíslason segir frá kynnum sínum af íslenskum Neanderdalsmanni og Ingvar Níelsson segir sögur af samferðamönnum hans á Norðfirði í kringum 1950. Haraldur Bjarnason, fyrrum fréttamaður RÚV, kallar fram minningabrot að austan og lesendur fá að kynnast sjóarabloggi  samtímans. Hilmar Snorrason, skólastjóri Slysavarnaskóla sjómanna, ritar um slysavarnir í 25 ár og lesendur fá að kynnast, með hjálp á þriðja tug ljósmynda, hvernig kolmunnahol gengur fyrir sig. Margt fleira mætti telja.

Ritstjóri Sjómannadagsblaðs Austurlands er Kristján J. Kristjánsson, frá Norðfirði.

Blaðið fer í söludreifingu um allt Austurland nú um helgina en þeir sem ekki búa á Austurlandi geta nálgast það á Grandakaffi í Rekjavík eða pantað á vefnum sjoaust.is/ og þurfa viðtakendur ekki að greiða sendingarkostnað.

 

 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica