Júní
Lambhús
Lambhús
Mynd 1 af 5
1 2 3 4 5

01.06.2010 Júní

Lambhús á Mýrum

Ný ferðaþjónusta  sem hlotið hefur nafnið  Lambhús er að taka til starfa á Lambleiksstöðum á Mýrum sem er 30 km vestan við Höfn. Til að byrja með verður þar tjaldsvæði ásamt þjónustuhúsi og fjórum smáhýsum. í smáhúsunum er svefnpláss fyrir fjóra, eldunaraðstaða og snyrting og í þjónustuhúsinu er sturta. Það eru hjónin Gunnar Gunnarsson og Steinvör Haraldsdóttir sem hafa veg og vanda af þessari nýju ferðaþjónustu. Flutningur smáhúsanna austur frestaðist vegna gossins en eru nú komin á sinn stað.  Þjónustusvæðið verður á túninu norðan við íbúðarhúsið.

Aðspurður um hestaleigu sagði Gunnar að ekki ætlaði hann að lofa því strax en nóg væri af hestum þar og folöldum sem fólki væri velkomið að skoða einnig væru þar gæsir, endur og landnámshænur. Lambhús býður þannig gestum sínum að komast  aðeins í snertingu við lífið í sveitinni.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica