Tinna Björk ráðin sem verkefnistjóri hjá NMI í Nýheimum
Impra á Nýsköpunarmiðstöð Íslands hefur ráðið Tinnu Björk Arnardóttur viðskiptafræðing í starf verkefnistjóra á starfsstöð sinni í Nýheimum. Sextán umsækjendur voru um starfið.
Tinna Björk tekur við starfinu af Ara Þorsteinssyni sem gengt hefur því frá opnun starfsstöðvarinnar. Tinna Björk er viðskiptafræðingur að mennt og hefur nýlokið meistaranámi frá Edinborgar Háskóla (The University of Edinburgh) þar sem hún nam alþjóðaviðskiptafræði með áherslu á þróunarríki (International Business and Emerging Markets).
Tinna Björk segir í samtali við vefinn að hún og Peter eiginmaður hennar hlakki til að flytja til Hornafjarðar, mér finnst þetta spennandi og áhugavert verkefni sem ég hlakka mikið til að takast á við. Ég kem til Hafnar á föstudaginn tek við starfinu 1. júní og flyt á staðinn í lok júní.
Tinna segir að helstu áhugamálin utan vinnunnar vera lestur, gönguferðir og ferðast um landið, við erum mikið útivistarfólk og ég hef heyrt að þarna fyrir austan sé mikil náttúrufegurð. Ég kom til Hornafjarðar þegar ég var krakki svo víst er að margt hefur breyst síðan og nú býð ég spennt eftir að sjá þetta allt og ekki síst vinnustað minn í Nýheimum.
Impra er miðstöð upplýsinga og leiðsagnar fyrir frumkvöðla og lítil fyrirtæki. Impra er deild innan Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands og hefur skrifstofur í Reykjavík, Akureyri, Ísafirði, Höfn, Egilsstöðum, Húsavík, Sauðárkróki og Vestmannaeyjum. Impra veitir öllum frumkvöðlum og litlum og meðalstórum fyrirtækjum á Íslandi leiðsögn, sama er í hvaða atvinnugrein þau eru, hvort heldur á sviði iðnaðar, sjávarútvegs, þjónustu eða annarra greina íslensks atvinnulífs.
Impra leiðir einnig mótun stuðningsverkefna sem stuðla að bættum rekstri lítilla og meðalstórra fyrirtækja og framgangi viðskiptahugmynda. Auk þess er Impra vettvangur samstarfs íslenskra og erlendra frumkvöðla og lítilla og meðalstórra fyrirtækja og er ráðgjafi stjórnvalda um stuðningsaðgerðir við nýsköpun og bætt rekstrarskilyrði lítilla og meðalstórra fyrirtækja.





Skrifa athugasemd