Maí
Séð yfir Melatanga
Séð yfir Melatanga
Mynd 1 af 2
1 2

26.05.2010 Maí

Til umhugsunar fyrir frambjóðendur

 

Eftir að hafa skoðað stefnuskrár frambjóðenda til sveitarstjórnar Sveitarfélagsins Hornafjarðar sýnist mér að eitt vanti hjá öllum flokkum, það er nægileg framsýn á þær breytingar sem landris og fylling fjarðarins mun óhjákvæmilega hafa á búsetu á Höfn. Horfi menn nokkur ár fram í tímann, þá ætti það að vera augljóst að innan nokkurra ára verður rennsli um Hornafjarðarós orðið mjög lítið og engan vegin nóg til þess að hreinsa út ósinn og viðhalda dýpi á grynnslunum. Einnig fyllast ræsin og siglingaleiðin um fjörðinn inn á höfnina þrengist og fyllist smá saman. Að sjálfsögðu vita þeir sem eru á miðjum aldri og þaðan af eldri hverjar breytingar hafa orðið í og á firðinum þannig að framhaldið kemur þeim ekki á óvart. Dæmið höfum við fyrir austan Vestra-horn sem er Papós og Papafjörður, þangað inn er nú ekki lengur fær leið skipum eða bátum. En svo sem kunnugt er sigldu skip um Papós inn á Papafjörð meðan verslun var stunduð þar. Oft leituðu bátar frá Hornafirði vars inni á Papós á árum áður þegar ófært var inn Hornafjarðarós vegna veðurs. Sömu dæmin sjáum við á fjörðunum hér fyrir austan Eystra-horn, Álftafirði og Hamarsfirði. Þess er einnig skemmst að minnast að allir flutningar á þungavörum og sláturfé fór fram á bátum milli Hafnar og Mýra. Eins og málum er nú háttað væri sjálfsagt nærri sanni að fara mætti sömu leið með flutningana á bíl ef undirlagið væri nógu hart, svo grunnur er fjörðurinn orðinn. Enda komnar fram hugmyndir um að leggja akveg ekki allfjærri þeirri leið sem siglt var á bátum frá Höfn suður á Mýrar. Hugleiðum nú aðeins samgöngumálin sem frambjóðendur hafa ekki gert nægilega góð skil. Fyrir mér er lausnin á hafnarmálum, vegamálum og um leið flugmálum tengt brú yfir Melaálinn úr Óslandi yfir á Suður-fjörur. Í stuttu máli má segja að með þeirri framkvæmd mætti slá þrjár flugur í einu höggi. Það fyrsta, komin væri ástæða til þess að hyggja að framtíðar höfn, sem löngu er orðið tímabært. Ekki er ólíklegt að Hvanney og Einholtsklettarnir séu góðir fastir punktar fyrir slíka mannvirkjagerð. Því næst bein leið fyrir þjóðveg 1 svo langt sem verða vill suður fjörur á góðu og eflaust ódýrasta vegastæði sem völ er á. Lítið mál væri síðan að tengja hinn endann við núverandi þjóðveg.  Síðast en ekki síst komið tækifæri til þess að leiðrétta þau leiðu mistök sem á sínum tíma voru gerð þegar flugvöllurinn á Suður-fjörum var lagður niður og fluttur inn í Nes, í stað þess að brúa úr Óslandi yfir á Suður-fjörur og byggja upp flugvöllinn þar. Nóg er landrýmið fyrir alþjóða flugvöll sem öllum er ljóst að gæti orðið stórfeld lyftistöng fyrir byggðarlagið.

 Það er nú varla hægt að skilja við hugleiðingar af þessu tagi án þess að leiða hugann aðeins að fylgifiskunum, sem sagt því blessaða fólki sem situr í þeim nefndum og ráðum sem stjórnvöld hafa komið á laggirnar til þess að hugsa fyrir galgopana sem eru svo fávísir að halda að skaparinn hafi meint eitthvað með því sem hann sagði um að þeir sem byggja þessa jörð ættu að nýta hana á skynsamlegan hátt. En þannig skil ég boðskapinn, sem af vörum drottins hljóðar svo. ,, Verið frjósöm, margfaldist og uppfyllið jörðina og gjörið hana ykkur undirgefna.” Ekki bara það, að skaparinn ætlist til þess að lýðurinn sái korninu og éti uppskeruna og stigi svo létt til jarðar að ekki sjáist skófar á akrinum.

 Með þessu innskoti er meining mín sú að það þarf víst ekki nokkur maður að ætla að hugmynd um brú yfir Melaálinn og veg á grundum hins margfriðaða Óslands sé framkvæmd sem hugnast þeim sem á annað borð sjá þarna gott tækifæri til þess að vera fúll á móti.

 Hinsvegar væri fróðlegt að fá vitneskju um  hvaða skoðanir frambjóðendur til sveitarstjórnar á Hornafirði hafa á framkvæmdum sem þessum sem imprað var á hér að ofan?  

                                                                                               

Ragnar Imsland.   

                                        

 

 Höfundur er búsettur á Hornafirði og hefur verið lengi.   

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica