Maí
Steingrímur J. Sigfússon
Steingrímur J. Sigfússon

21.05.2010 Maí

Steingrímur með fund á Kaffi Horninu

Steingrímur J. Sigfússon, Fjármálaráðherra og formaður Vinstrihreyfingarinnar Græns framboðs kemur til Hornafjarðar á morgun, laugardaginn 22. maí og verður með opinn fund á Kaffi Horninu, byrjar fundurinn klukkan 13:00.
Vegna anna Steingríms bæði í ríkisstjórn og við að aðstoða við framboðin til sveitarstjórnakosninga bjuggumst við varla við því að hann gæti gefið sér tíma til að koma alla leið til okkar. En sem betur fer opnaðist smá glufa í annars þéttskipaða dagskrá Steingríms og hann óskaði eftir því að fá að koma. Við urðum að sjálfsögðu við því, þó að tíminn væri skammur og lítið hægt að auglýsa. Vonumst við til að sem flestir sjái sér fært að koma á Kaffi Hornið, hlusta á Steingrím og spyrja hann spjörunum úr um málefni sveitarstjórna, nú eða landsmálin yfirleitt.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica