Maí
Fjölskyldan á Bogaslóðinni
Fjölskyldan á Bogaslóðinni
Erna, Sigurborg, Guðrún Sigríður, Gísli og Álfheiður, Magnhildur og Ingibjörg
Mynd 1 af 2
1 2

19.05.2010 Maí

Platínubrúðkaup

Heiðurshjónin Álfheiður Magnúsdóttir og Gísli Arason á Höfn eiga 70 ára brúðkaupsafmæli ( platínubrúðkaup) í dag 19.maí.

Heiðurshjónin Álfheiður  Magnúsdóttir  og Gísli Arason á Höfn eiga 70 ára brúðkaupsafmæli ( platínubrúðkaup) í dag 19.maí. Gísli er fæddur 1917 og Álfheiður 1919 bæði fædd og uppalin á Mýrunum og því Hornfirðingar í húð og hár. Þegar fréttamaður vefsins leit inn til þeirra í gær, voru þau hin hressustu og nutu þess að hafa allar dæturnar hjá sér og tóku því ljúfmannlega að  segja okkur eitthvað af þeim sjálfum og þá fyrst hvað þeim er minnistæðast frá  fyrstu búskaparárunum?
Bara baslið segir Álfheiður, þá áttum við ekkert og settumst í búið hjá pabba og mömmu þar sem við bjuggum í fimm ár. Þetta gekk þó allt vel og þar eignuðumst við tvær dætur og við vorum hamingjusöm sem var það sem skipti mestu máli. Eftir fimm ára búskap í  Holtum á Mýrum flutti öll fjölskyldan á Höfn. Þar var farið í að byggja íbúðarhús segir Gísli, en á þessum árum  var erfitt að fá efni til húsbygginga, þá fékkst ekkert timbur eða járn svo við rifum gamla húsið í Holtum og notuðum timbrið úr því í uppsláttinn á húsinu hér , fluttum svo inn þó allt væri óklárað innan dyra. Þá var ekki auðhlaupið að því að fá lán og hér var engin lánastofnun en okkur tókst að fá sex þúsund króna víxil í bankanum á Eskifirði og það varð að duga.
Engin upphitun var í nýja húsinu fyrsta árið nema kolaeldavél og var því oft ansi kalt inni en þennan  fyrsta vetur urðu þau fyrir þeim hremmingum að kviknaði í húsinu út frá kyndingunni. Þetta gerðist snemma morguns og var Gísli farinn í vinnu út í Álaugarey þegar eldsins varð vart. Álfheiður forðaði  börnunum úr húsinu og brátt dreif að vaska sjómenn með fötur en stutt var í sjóinn og tókst fljótt að slökkva eldinn. Það fyrsta sem ég sá þegar ég kom heim sagði Gísli, voru sviðin og brunnin föt  tan við húsið. Þarna fóru öll fötin okkar því þau voru öll geymd þar sem hitunin var.  Við vorum algjörlega fatalaus og engin verslun var hér þar sem hægt var að fá fatnað  en þá komu blessaðir sveitungarnir okkar með fatnað sem  þeir höfðu safnað handa okkur  og við vorum ekki fatalaus eftir það.
Álfheiður og Gísli hafa alla tíð haft mikinn áhuga á félagsmálum og verið þar virkir þátttakendur m.a var Álfheiður  20 ár í stjórn kvenfélagsins á Höfn. Gísli hefur leikið í fjölda leikrita sem sett hafa verið  á svið hér enda frábær leikari. Álfheiður lét nægja að leika í tveim leikritum áður en dæturnar komu til sögunnar en segist ekki hafa verið  góður leikari svo hún  lét þar við sitja.
Gísli segist aldrei hafa orðið atvinnulaus, alltaf haft næg verkefni og margvísleg og til að nefna nokkur þeirra þá hann var fyrsti mjólkurfræðingurinn hér og stýrði fyrsta mjólkurbúinu, tók þátt í byggingu mjólkurstöðvarinnar, byggingu og stofnun Skjólgarðs, var fyrsti umsjónarmaður Heilsugæslustöðvarinnar og safnvörður í Byggðasafninu. Núna njóta hjónin þess að taka þátt í félagsskap og starfsemi eldri borgaranna.
Fyrir rúmum tuttugu árum byggðu Gísli og Álfheiður sér hús við hliðina á því gamla, hús sem er minna og hentar þeim betur  þegar  aldurinn færist yfir.  Gísli segir það stóra lánið þeirra að Erna dóttir þeirra og fjölskylda keyptu gamla húsið, það er ómetanlegt fyrir okkur að hafa hana svona nálægt  annars hefðum við ekki getað búið hér svona lengi .
Heilsan er  góð miðað við aldur segir Gísli, við höfum verið heppin það sem af er okkar ævi, við eigum stóra fjölskyldu, yndislegar dætur og 34 afkomendur og hann bætir við hlæjandi  ,,við erum búin að dragnast þetta í hjónabandi  í 70 ár og það hefur gengið svona, við höfum ekki  alltaf verið sammála og svo á það að vera.
Brúðkaupsafmælisins ætla  Álfheiður og Gísli að njóta með fjölskyldu sinni heima á Bogaslóðinni og verður þar án efa  glatt á hjalla og ekki ólíklegt að einhverjir taki lagið því eins og allir vita sem til þekkja er  þessi  fjölskylda sérstaklega söngelsk og hress.
Vefurinn sendir  brúðhjónunum bestu hamingjuóskir með daginn!

 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica