Undir Hornafjarðarmána
Landsbyggðaráðstefna 2010
Helgina 21.-23. maí halda Sagnfræðingafélag Íslands og Félag Þjóðfræðinga á Íslandi hina árlegu landbyggðaráðstefnu sína á Suðausturlandi. Ráðstefnan er haldin í samstarfi við Háskólasetrið á Hornafirði, Menningarmiðstöð Hornafjarðar og ReykjavíkurAkademíuna. Um nokkurs konar farandráðstefnu er að ræða og gist verður í Suðursveit fyrri nóttina og á Höfn síðari nóttina. Á dagskrá eru fjölbreytilegir fyrirlestrar sem eru öllum opnir.
DAGSKRÁ:
LAUGARDAGUR 22. maí
9-10:30 Málstofa á Þórbergssetri.
Julian D´Arcy: „Áfram með smjérið.“ Vandamálið við að þýða Þórberg á ensku.
Rósa Þorsteinsdóttir. Að segja hverja sögu eins og hún var. Söfnun Hallfreðar Arnar Eiríkssonar á sögum úr Suðursveit.
Már Jónsson: Rúmföt í Skaftafellssýslum um miðbik 19. aldar.
10:30-11:00 Gönguferð með Fjölni Torfasyni.
11:15 Kálfafellskirkja
Margaret Cormack: Kálfafellsstaður í máldögum og þjóðsögum.
12-13:00 Hádegisverður á Smyrlabjörgum.
Júlíana Þóra Magnúsdóttir: Þjóðsagnasafnarinn frá Kálfafellsstað. Um Torfhildi Þorsteinsdóttur Hólm og þjóðsagnasöfnun hennar.
14:30 Geitafell/ Hoffell Útifyrirlestur: Arnþór Gunnarsson: Mannlíf, náttúra og ferðamennska í sögulegu ljósi.
Kaffi
Útifyrirlestur: Þorvarður Árnason fjallar um ljós- og kvikmyndun sína á Hoffellsjökli.
16:00 Hólmur, Laxárdal í Nesjum: Bjarni F. Einarson, fornleifafræðingur, kynnir uppgröftinn.
18:00 Komið í Nesjaskóla þar sem gist verður og síðan fer rútan inn á Höfn þar sem fólk fer í kvöldmat. Fyrir kvöldmat verður í boði að skoða Jöklasetrið á Höfn.
SUNNUDAGUR 23. maí
9:30 Björg Erlingsdóttir, menningarstjóri á Höfn, kynnir starfsemi Nýheima.
10-12:00 Málstofa í Nýheimum.
Steinunn Kristjánsdóttir: Skreiðin á Skriðu. Um tengsl milli Fljótsdalshéraðs og Austur-Skaftafellssýslu á miðöldum.
Soffía Auður Birgisdóttir: Svaðilfarir á jökli: Um tengsl milli frásagnar Sigurðar á Kvískerjum og Skugga-Baldurs eftir Sjón.
Kaffihlé.
Eiríkur Valdimarsson: Veðurspár almennings. Eftirtekt og sjálfsbjargarviðleitni kynslóðanna.
Björg Erlingsdóttir: Miðlun munnlegrar hefðar í samtímanum.





Skrifa athugasemd