Fyrirlestur og "workshop" í hönnun og smáframleiðslu matvæla
FOOD NARRATIVE – CONNECTION WITH CULTURAL AND REGIONAL IDENITY
Þriðjudaginn 18. maí n.k. verður hér á ferðinni arkitektinn og hönnuðurinn Brent Richards. Hann mun halda fyrirlestur um nýsköpun í smáframleiðslu matvæla og tengingu við svæðisbundna menningu.
Titill fyrirlestursins er : FOOD NARRATIVE – CONNECTION WITH CULTURAL AND REGIONAL IDENITY.
Fyrirlesturinn hefst kl 1220 og verður í fyrirlestrarsal Nýheima á Höfn
Í framhaldi af fyrirlestrinum verður Brent svo með stutt „workshop“ þar sem hann mun vinna með áhugasömum að skilgreiningu tækifæra í Ríki Vatnajökuls.
Brent Richards er arkitekt og hönnuður sem hefur lengi unnið að matarhönnun. Hann stýrði í mörg ár DesignLab við Central Saint Martin School of Design í London. Nú er Brent framkvæmdastjóri The Design Embassy Europe. Hann hefur mikil alþjóðleg tengsl bæði í hönnunarheiminum, matarmenningu og nýjungum í mat og upplifun.Brent er mjög áhugasamur um stöðu mála hér á okkar svæði og kemur hingað með stelpunum í “Björg-í-bú” sem vinna nú að verkefni um framleiðslu á sjávarsöltuðum kartöfluflögum úr Ríki Vatnajökuls.
Helga Björg Jónasardóttir, Edda Gylfadóttir og Guðrún Hjörleifsdóttir eru vöruhönnuðir útskrifaðar frá Listaháskóla Íslands og saman reka þær Björg-í-bú sem
er hönnunarstofa sem leggur áherslu á matarhönnun ásamt almennri vöruhönnun. Þær eru meðal annars að þróa sölsnakk úr Breiðafirðinum og svo kartöfluflögurnar með Hjalta á Seljavöllum. Þessi verkefni ásamt öðrum sem þær vinna að voru tilnefnd til nýsköpunarverðlauna forseta Íslands. Heimasíðan er ekki tilbúin hjá þeim stöllum en þær eru með síðu á facebook síðu sjá hér
Eru allir sem hafa áhuga hvattir til að mæta.





Skrifa athugasemd