Maí
Ásta Baldursdóttir í Handraðanum
Ásta Baldursdóttir í Handraðanum
Mynd 1 af 6
1 2 3 4 5 6

14.05.2010 Maí

Handraðinn fluttur í húsnæði N1 við Vesturbraut

 

Handraðinn, verslun handverkafólks í Hornafirði, hefur flutt af Hafnarbrautinni inná Vesturbraut og var verslunin opnuð um sl. helgi í  söluskála N1 þar sem Vínbúðin var áður til húsa. Verslunin er hin glæsilegasta og mikið betra aðgengi að allri þessari fallegu vöru sem þarna er á boðstólum. Guðrún Finnsdóttir formaður  Handraðans er ánægð með breytinguna og segir að þessi aðstaða henti þeim vel. Það er ánægjulegt hvað margt ungt fólk kemur með handverk í sölu segir Guðrún og það er alveg ótrúlega hvað við Hornfirðingar eigum mikið af góðu handverksfólki og listamönnum.

Það hefur stóraukist  að heimafólk kemur í Handraðann til að leita að gjafavöru enda úr mörgu að velja á mjög góðu verði og eitthvað fyrir alla aldurshópa. Heldur færri ferðamenn hafa komið í verslunina en á sama tíma í fyrra en viðskiptum heimamanna  fjölgar og við erum bjartsýn á að árið verði okkur hagstætt og gott segir Guðrún og  hún vill hvetja unga fólkið í sveitarfélaginu endilega að koma og taka þátt í starfsemi Handraðans

Félagsmenn sem standa að Handraðanum  eru um 90 og af þeim eru um 40 framleiðendur þess handverks sem í versluninni er. Verslunin er opin alla daga frá kl. 9.00 til 18.00

 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica