Maí
Glitský í ríki Vatnajökuls
Glitský í ríki Vatnajökuls
Glitský í ríki Vatnajökuls

13.05.2010 Maí

Styrktartónleikar á Spot í Kópavogi

Fimmtudagskvöldið 13. maí verða haldnir tónleikar til styrktar Margréti Andrésdóttur
á Spot í Kópavogi.

Gréta hefur verið búsett á Egilstöðum ásamt 3 börnum sínum síðustu misseri
og hefur hún allt síðan 2004 barist við erfiðan langvarandi sjúkdóm, sem veikir hjá henni ónæmiskerfið.
Vegna veikinda sinna hefur hún þurft að koma ótal ferðir til Reykjavíkur í rannsóknir, lyfjagjafir og aðgerðir.
Hún er enn að berjast við þennan sjúkdóm og allt hennar fer í lækna, lyf og annan veikindakostnað.
Sjúkdómurinn er ekki þekktur svo að hún nýtur því miður lítils skilnings í kerfinu.

Þetta verður sannkölluð tónlistarveisla á Spot og þeir sem stíga á stokk eru Greifarnir, Haffi Haff,
Friðrik Dór, Einar Ágúst, Alan Jones, Alexander Aron/Ímynd, Sylvía Rún, Tinna Rut, Nanna Imsland,
Stefanía, Kristmundur Axel og Júlí Heiðar sem sigruðu Söngkeppni Framhaldsskólanna 2010 og
Bee on Ice sem sigruðu trúbadorakeppni FM 957 fyrir stuttu.

Nánari upplýsingar er hægt að finna á
http://www.facebook.com/event.php?eid=117363851630740&ref=ts eða
http://www.facebook.com/styrktarsida.margretar


Aðgangseyrir á tónleikana er 1500 krónur og rennur allur ágóði til Grétu.
Tónleikunum verður einnig sjónvarpað beint á Valaskjálf á Egilstöðum og er aðgangseyrir þar 1000 kr.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica