Maí
Ingólfshöfði (Mynd Einar Sig.)
Ingólfshöfði (Mynd Einar Sig.)
Ingólfshöfði (Mynd Einar Sig.)
Mynd 1 af 3
1 2 3

11.05.2010 Maí

Frábær tilboð í skoðunarferðir

 

Skoðunarferðir í Ingólfshöfða  á vegum Öræfaferða hófust að venju 24. apríl. Hjónin Matthildur Þorsteinsdóttir og Einar Sigurðsson í Hofsnesi skiptast á um að fara með hópana út í Höfðann og geta farið fimm ferðar á dag og að auki er hægt að fá sér  erð kl. 6 að morgni til fyrir þá sem einungis vilja ljósmynda. Hver skoðunarferð tekur tvær og hálfa klst. Mun ódýrara er að fara í skoðunarferðirnar í sumar en áður og kostar ferðin fyrir íslendinga aðeins 2.500 f. fullorðna og 1000 kr. fyrir 8-16 ára  sem er hreint frábært tilboð. Með þessu viljum við taka þátt í lækkun kosnaðar ferðafólks á þessum erfiðu tímum sem við búum við núna segir Einar og hann segist bara vona að fólk noti sér þetta tilboð. Ljósmyndunarferðir eru ekki í þessu tilboði.

Lundum í Höfðanum fjölgar dag frá degi og útlit á að mikið verði af fugli þar í sumar. Venjulega hefst varp síðari hluta maí  en  síðustu tvö ár byrjaði lundinn að verpa  um mánaðarmót apríl maí sem  er óvenju snemmt. Eitthvað er um afpantanir á ferðum  vegna gossins en Matthildur er bjartsýn á að nóg verði að gera í sumar eins og undanfarin sumur, frekar meira.

Ferðir á Hvannadalshnúk eru alltaf jafnvinsælar og er Einar með fullbókaðar ferðir fram í júlí á hnúkinn og nú taka líka við ferðir með skólakrakka í klettaklifur og skoðunarferðir í Ingólfshöfða. Einar segir að sumir skólar komi ár eftir ár með sína 10. bekkinga og þessar ferðir njóti mikilla vinsælda einkum sé klettaklifur í Hnappavallarhömrum spennandi.

Eins og síðustu sumur verður boðið upp á kajakaferðir sem eru í umsjá  Arons sonar þeirra Einars og Matthildar.

 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica