Fegrað og bætt
Vinnuskólinn á Höfn sem hefur það aðalhlutverk að fegra og prýða bæinn er tekinn til starfa. Fyrir helgina hitti fréttamaður vefsins þau Finn Smára og Steinunni Hödd þar sem þau voru að gera við girðingu utan um trjálund í miðbænum og báru sig virkilega fagmannlega við verkið og það er ýmislegt sem þarfnast viðgerðar eða endurnýjunar eftir veturinn . Þau sögðu að þetta væri allt að fara almennilega af stað og skólafólkið að koma til liðs við þau og eins og í fyrra er Steinunn flokksstjóri og hefur yfirumsjón með vinnuskólanum . Unglingavinnan byrjar þegar skólum líkur og verður með hefðbundnum hætti og þar á bæ er búið að ráða í allar flokksstjórastöður.




Skrifa athugasemd