Maí
Eirin Kristin Kjær
Eirin Kristin Kjær
Með kynningu á landi sínu, þjóð og heimahögum (Mynd:FAS)

07.05.2010 Maí

Síðasti skóladagur í FAS - Heia Norge!

Í gær var síðasti dagur kennslu á þessari önn í FAS. Af því tilefni bauð nemendafélagið upp á kaffi og með því í löngu frímínútunum. Það má með sanni segja að nemendur hafi tekið þessari nýbreytni vel og gæddu þeir sér á góðgætinu af hjartans lyst.
Í hádeginu var síðan skiptineminn í FAS frá Noregi hún Eirin Kristin Kjær með kynningu á landi sínu, þjóð og heimahögum. Töluverður fjöldi mætti til að hlusta á kynningu Eirin og það var sérstaklega ánægulegt að sjá hversu margir nemendur voru mættir. Við þetta tækifæri vildi FAS þakka Eirin fyrir góða viðkynningu á liðnum vetri og óskuðu henni alls hins besta í framtíðinni. 

www.fas.is

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica