Mennta- og menningarmálaráðherra í heimsókn í Þórbergsetri
Miðvikudaginn 5. maí kom Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra í heimsókn í Þórbergsetur ásamt aðstoðarmanni. Tilefnið var undirritun rekstrarsamnings ráðuneytisins við Þórbergssetur um fast framlag af fjárlögum Alþingis til reksturs Þórbergsseturs, 10 milljónir króna á ári á árunum 2010 til 2012. Þar með er Þórbergssetur búið að fá sama sess og rithöfundasetrin Skriðuklaustur og Gljúfrasteinn, þó að reyndar sé um mismunandi há rekstrarframlög að ræða til hverrar stofnunar fyrir sig.
Það var notaleg stund í Þórbergssetri þegar samningurinn var undirritaður. Stjórn Þórbergsseturs og ýmsir velunnarar setursins voru á staðnum. Í upphafi flutti menntamálaráðherra Katrín Jakobsdóttir ávarp. Hún hafði ekið í gegnum gossvæðið undir Eyjafjöllum fyrr um daginn, komið við á safninu á Skógum hjá Þórði Tómassyni og heyrt drunurnar frá gosinu. Sú reynsla var henni greinilega ofarlega í huga. Katrín sagði að samningur þessi miðaði að því að Þórbergssetur fái viðurkenninu sem eitt af þremur rithöfundasetrum Íslands. Menntamálanefnd Alþingis hafði ályktað samhljóða um að Þórbergssetur kæmist inn á föst fjárlög Alþingis við afgreiðslu fjárlaga allt frá árinu 2007 og með þessari undirritun varð sú stefnumótun að veruleika. Þórgunnur Torfadóttir stjórnarformaður flutti skemmtilegt ávarp og bar saman þær breytingar sem orðið hafa á samfélagsgerð og lífi fólksins í Suðursveit síðan hún var barn að alast þar upp. Þá áttu börnin þessa sveitaveröld sem vettvang leikja og gönguferða, jafnvel var hægt að spóka sig um á þjóðveginum án nokkurra truflana af umferð. Taldi hún að samningur sá sem væri verið að undirrita nú skipti sköpum um áframhaldandi starfsemi Þórbergsseturs og bæri vott um öfluga byggðastefnu, þar sem hugmyndir og uppbygging sprytti upp frá grasrótinni með menningarumhverfi sveitasamfélagsins sem bakgrunn. Reynir Arnarson forseti bæjarstjórnar flutti ávarp og þakkað Katrínu fyrir að ganga svo myndarlega fram fyrir skjöldu og tryggja rekstur þessarar menningarstofnunar í Sveitarfélaginu Hornafirði. Soffía Auður Birgisdóttir bókmenntafræðingur sagði frá samstarfi Þórbergsseturs og Háskólasetursins á Höfn. Hún ræddi um samstarf í útgáfumálum og sagði frá hvernig þessar stofnanir hafa byggt upp sameiginlegan starfsvettvang á mörgum sviðum. Soffía las upp úr bréfi frá Guðmundi Böðvarssyni skáldi á Kirkjubóli, sem hann sendi Þórbergi árið 1959. Þar spáir hann því að austur á Hala, verði reist musteri, veglegt í tign og einfaldleik, sem hæfði minningu Þórbergs um aldir, meðan vötn tímans héldu áfram að hrynja niður í hafsauga eilífðarinnar. Að lokum söng Steinþór Þórðarson á Hala barnagælur fyrir viðstadda af segulbandi, og þannig birtist gestum frá fortíðinni örstutt áminning um hversu auðug alþýðumenning liðinna alda var af skemmtan, fróðleik og glöðum og góðum hug.





Skrifa athugasemd