Góð hreyfing á fasteignamarkaðinum
Góð hreyfing hefur verið á fasteignamarkaðinum á Hornafirði það sem af er þessu ári segir Snorri Snorrason hjá fasteignasölunni INNI.
Hjá okkur hafa selst 2-4 íbúðir á mánuði og auk þess hafa aðrar fasteignasölur selt eignir hér á svæðinu og í heildina eru þetta margar fasteignir sem selst hafa á þessu ári. Fólk sem verið hefur í leiguíbúðum er nú að kaupa og einnig eru nokkrir pólverjar sem keypt hafa hús, sumir nýlega fluttir hingað. Bæjarfélagið setti 10 íbúðir í fjölbýlishúsi á Sandbakka í sölu í haust og eru 4 af þeim seldar, þetta eru mjög skemmtilegar og frambærilegar íbúðir.
Snorri segir að nokkur ásókn sé í leiguíbúðir en þegar þessi tími er kominn er lítið um l laust húsnæði hér og á leigumarkaði fasteignasölunnar eru einungis tvær íbúðir á lausu. Við megum vera ánægð með stöðuna og við höfum verið með mestu fasteignasöluna á svæðinu frá Hornafirði austur og norður til Húsavíkur




Skrifa athugasemd