Maí
Strandlengjan vestan Leiðarhöfða
Strandlengjan vestan Leiðarhöfða

04.05.2010 Maí

Hreinsivirki utan við Leiðarhöfða

 

Bæjarstarfsmenn á Höfn eru að undirbúa frágang  á hreinsivirki fyrir fráveituna til að hreinsa skólpið frá bænum sem fer í fjörðinn. Nokkuð hefur borið á rusli frá frárennslinu við strandlengjuna frá Leiðarhöfða vestur fyrir Silfurnes en með þessum hreinsibúnaði út af Leiðarhöfða segir Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri Umhverfissviðs að vonast sé til að öll strandlengjan hér vestur með verði hrein og laus við allt úrgangsrusl.

Strandlengjan frá Leiðarhöfða og fram með golfvellinum á Silfurnesi er vinsæl gönguleið og margir velja að fara fjöruna þó hún sé ekki eins greiðfær og rennsléttir bakkarnir.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica