Apríl
FAS dimmision
FAS dimmision
Þetta eru væntanlegir útskriftarnemendur, klædd sem "kötturinn með höttinn".(@FAS)
Mynd 1 af 6
1 2 3 4 5 6

30.04.2010 Apríl

Allt á hvolfi í FAS

Það má með sanni segja að það hafi verið allt á hvolfi þegar nemendur og kennarar mættu í morgun. Í skjóli nætur höfðu greinilega einhverjir verið í húsinu.
Búið var að setja öll húsgögn á hvolf á kennarastofunni og í setustofu nemenda. Nokkur vinnuherbergi kennara höfðu verið þakin gulum sneplum eða þau fyllt blöðum og vinnuherberginu hans Sigursteins hafði hreinlega verið pakkað inn í gömul dagblöð. 
Það gekk fljótt og vel að upplýsa málið enda hafa skrítnir kallar og kellingar sést á reiki í bænum sem greinilega eru til alls líkleg. Þetta eru væntanlegir útskriftarnemendur, klædd sem "kötturinn með höttinn". Krakkarnir eru í dag að kveðja skólann sinn og lyfta sér aðeins upp áður en prófaamstrið byrjar.

www.fas.is

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica